Leita í fréttum mbl.is

Lag gert við ljóðið mitt 'Huggun', sem er um hann Tító minn

Ég fékk skemmtilega upphringingu frá ungum manni,  Halldóri nokkrum, náði ekki eftirnafninu. Hann sagðist hafa gert lag við ljóðið 'Huggun' , sem ég gerði um hann Tító minn og birti hér á blogginu mínu. Hann sagði að hann hefði gert lagið í febrúar því ég hefði birt ljóðið fyrst þá á blogginu.
Ég var náttúrulega búin að steingleyma því að ég hefði birt ljóðið hérna áður. Við töluðum heillengi saman, mest um dýrin okkar, en hann á bæði kött og hund. Ég sagði honum að það hefði verið gert lag við ljóð eftir mig áður, en það ljóð heitir 'Ský' og sá sem gerði lagið hefði sungið það með textanum mínum,  opinberlega. Það var einhver tónlistarkennari sem gerði það lag og hann hringdi í mig á sínum tíma til þess að segja mér frá þessu. Hann ætlaði að senda mér lagið með söng sínum, en það varð nú aldrei neitt af því. Ef þessi tónlistarkennari les þetta blogg, sendir hann mér kannski upptöku af sönglaginu 'Ský' eftir allt saman.
Halldór lofaði að senda mér lagið sitt við 'Huggun' og ætlar kannski líka að gera lag um Skýið. Hann spurði hvar hann gæti nálgast það og ég benti honum á það.
Svo gáfum við hvort öðru netföngin okkar og nú bíð ég spennt eftir laginu hans Halldórs, um Títólinginn minn.

Tító minn verður þá kannski ódauðlegur eftir allt saman, ef lagið verður þekkt. Jibbý, jibbý, jei! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið er gaman af þessu Guðný mín mikið þessi ungi maður  góður. En hvernig líður Tító. ???

Kristín Katla Árnadóttir, 20.8.2007 kl. 18:46

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Tító er fínn Kristín mín, enda fær hann ekkert annað en mat samkvæmt lyfseðli. Alveg hætt að gefa honum nokkuð annað.

Svava frá Strandbergi , 20.8.2007 kl. 19:11

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegt að heyra, auðvitað verður Tito ódauðlegur, það liggur í augum uppi.  Kveðja á hommana. 

Ásdís Sigurðardóttir, 20.8.2007 kl. 19:55

4 Smámynd: www.zordis.com

Gaman að þessu.  Við fáum kanski að heyra lagið "huggun" og fá að njóta þess með þér! 

www.zordis.com, 20.8.2007 kl. 20:08

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Arna, skila kveðjunni til hommanna Ásdís, zordís ef ég fæ lagið sent á diski þá set ég það auðvitað á bloggið mitt.

Svava frá Strandbergi , 20.8.2007 kl. 21:17

6 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Skemmtilegt hlakka til að fá að heyra lögin.

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 21.8.2007 kl. 00:05

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ása Hildur, ég skoðaði fyrst í dag skilaboðin frá  þér í  gemsanum. Ég gleymi alltaf  að  athuga  sms inn.

þakka þér fyrir, þó seint sé. 

Svava frá Strandbergi , 21.8.2007 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband