Leita í fréttum mbl.is

Blues

Ég hef verið ansi blúsuð undanfarnar vikur. Hef varla haft mig í það að fara út úr húsi, eða á nokkur mannamót. það er eins og einhver andlegur doði sé yfir mér. Ég er búin að sækja um óteljandi vinnur en fæ enga ennþá. Ég hef heldur ekki haft mig uppí að gera neitt af viti eins og að mála mynd eða yrkja.
Aftur á móti hef ég verið dugleg hérna heima við, svo sem að taka til og endurbæta ýmislegt í íbúðinni minni. En það er ekki nóg. Svo í dag birti til því vinkona mín, mamma hennar og ég fórum saman á Magma, hönnunarsýninguna á Kjarvalsstöðum og kíktum líka inn á litla Kjarvalssýningu á staðnum.
Mér fannst margt skemmtilegt að sjá á hönnunarsýningunni, en það sem lyfti mér í hæstu hæðir var lítil mynd eftir meistara Kjarval. Þessi mynd var eins og opinberun, svo allt öðruvísi en allar aðrar myndir sem ég hef séð eftir meistarann og eru allar myndir hans þó  fullkomnar.
Það stóð við myndina að hún væri ókláruð, en mér fannst hún vera fullkomin. Mér finnst svo skrýtið að þegar ég sér mikil listaverk að þá bókstaflega drekk ég þau í mig með augunum. Ég finn greinilega tilfinninguna í augunum þegar augað nemur myndina og eins og sýgur hana í sig  og alveg upp í heila og þaðan dreifist upplifunin út um allan líkamann.
Þessu fylgir ólýsanleg unaðstilfinning og mér finnst eins og ég gangi inn í myndina og komist í einhvers konar ' rúss' eða sæluvímu. Nú þegar ég sit hér við tölvuna hugsa ég um þessa mynd og hversu mikla gleði og birtu hún veitti mér með látlausri fegurð sinni og ég ég fer að sofa fullviss um það, að það muni birta fljótlega til í lífi mínu líka. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ja eg er tess lika fullviss og ad tu sert bara ad fara i gegnum mj0g mikilvaegan tima nuna sem tu att eftir ad lita til baka og segja..tad var tarna sem umbreytingin vard. Stundum er lifid bara ad gefa plass til ad anda og finna ut ur hlutum sem madur gefur ser aldrei tima til a ollum tessum hlaupum. Njottu tessa bara !!! Og drekktu meira af kjarval i tig

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 08:35

2 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

já ég er líka fullviss um að það birtir til í lífi þínu. Enda ertu sérdeilis hæfileikarík kona. Og ég er alveg viss um að vinnustaðirnir eiga eftir að slást um þig.

Ó ég öfunda þig að hafa drifið þig. Ég er svo löt að fara á sýningar en hef samt alltaf svo gaman af því.

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 10.8.2007 kl. 08:54

3 Smámynd: Gúrúinn

Besta ráðið við blús er að brosa hvort sem það þarf að þvínga brosið frameða ekki. Vonandi brosirðu að sögunni sem ég setti inn hjá mér í dag; ef ekki þá skal ég hugsa vel til þín (geri það nú hvort sem er).

Allt böl er tímabundið, mundu það! Láttu góðar tilfinningar flæða um þig, bloggvinkona.

Gúrúinn, 10.8.2007 kl. 08:58

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kjarval var snillingur ég von að allt gangi vel hjá þér.

Kristín Katla Árnadóttir, 10.8.2007 kl. 09:39

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk öll, já ég er örugglega að fara í gegnum  einhverjar breytingar í lífi míu Katrín.

Ása Hildur, ég er til í að fara með þér á sýningar þegar þú vilt.

Gúrú, ég er búin að lesa söguna, bloggvinur.

Ég vona líka að allt gangi vel hjá þér Krístín mín.

Svava frá Strandbergi , 10.8.2007 kl. 10:27

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku dúllan mín, það birtir alltaf. Það er ótrúlegt hvað það getur vakið mikinn unað það sem maður tekur inn í gegnum augun. Knús til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2007 kl. 12:17

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús til baka Ásdís mín.

Svava frá Strandbergi , 10.8.2007 kl. 14:16

8 Smámynd: www.zordis.com

Það er oft gott að snerta jörð, finna til og heyra slátt hjartans!  Gangi þér vel og svona tímabil er liðin áður en við vitum af!  Ég hugsa til þín með Ástina og hamingjuna í fararbroddi!  Lifðu í ljósinu

www.zordis.com, 10.8.2007 kl. 21:48

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis, zordís mín.

Svava frá Strandbergi , 10.8.2007 kl. 23:18

10 Smámynd: Guðrún Markúsdóttir

Schubert samdi líka ófullgerðu sinfóníuna - en hún er alveg ágæt samt.  Takk fyrir innlitið á síðuna mína, ég stefni að því að birta myndir af köttum á næstunni - annað hvort á morgun eða eftir viku. (Þarf að hírast í borginni í næstu viku). Skil hvernig þér líður - ég er líka hálf-atvinnulaus - en þú þarft ekki að hafa áhyggjur, greinilega mikil hæfileikakona. Gangi þér vel!

Guðrún Markúsdóttir, 11.8.2007 kl. 02:32

11 Smámynd: Guðrún Markúsdóttir

Flott myndin hér á undan! Ég dreif í að taka myndir af kettlingum sem nú má skoða á minni síðu. Bestu kveðjur!

Guðrún Markúsdóttir, 11.8.2007 kl. 18:18

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Guðný mín það er yndislegt að þú skulir geta fundið gleðina í svo litlum hlutum. Segir ansi margt um þig sem persónu. Ég dáist að fólki sem er svona listrænt og þessi tilfinning sem þú lýsir þarna er mér algjörlega ókunn. Mér þykir þetta afskaplega merkilegt.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.8.2007 kl. 18:48

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég hef enga vinnu en ég er samt ekki atvinnulaus...ég er bara tekjulaus..hehe. Bý mér bara til störf úr því sem ég elska að gera og lifi bæði hátt og lágt..fer svona eftir því hvernig á það er litið og frá hvaða sjónarhorni.

Vona að þér líði betur vinkona....

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.8.2007 kl. 21:50

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir myndirnar af kettlingunum Guðrún. Þeir eru voða sætir, en ég er nu bara að þreifa fyrir mér ennþá, þar sem ég á gamlan kött, sem er heilsuveill. Hélt kannski að þú værir með einhvers konar kattaræktun þar sem væri hægt að ganga að kettlingum vísum þegar þar að kemur. En kannski leita ég til þín seinna samt ef þú veist þá ennþá um sæta kettlinga. Mér fannst þessi guli fallegastur því hann er svipaður á litinn og Tító minn sem er beige á litinn. 

Jóna, þú ert nú ekkert smá listræn. tilvonandi metsöluhöfundur örugglega.Sögurnar þínar eru frábærar í einu orði sagt. Ég gæti aldrei skrifað svona sögur.

Katrín mín,  ég mála líka en alltof sjaldan. Annars hef ég fengið verkefni útá bloggið mitt eins og að myndskreyta bók fyrir útskriftarnema Menntaskólans á Laugarvatni s.l. vor og myndskreytti svo bók fyrir Námsgagnastofnun. Ég byrja að mála af fullum krafti þegar ég er búin að koma vinnustofunni minni í lag. Annars var ég að mála jólakort sem ég ætla að reyna að selja eihverju kortafyrirtæki fyrir næstu jól.

Svava frá Strandbergi , 12.8.2007 kl. 00:44

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Frábært Guðný. Má ég spyrja hvaða bækur þetta eru sem þú hefur myndskreytt?

Jóna Á. Gísladóttir, 14.8.2007 kl. 00:53

16 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég myndskreytti síðast kynfræðslubókina ' Um stelpur og stráka' fyrir Námsgagnastofnun, Bækur um Jóa og leynifélagðið fyrir Skjaldborg, Bók sem heitir Ævintýrir í sveitinni og bókina Amo Amas eftir Þorgrím þráinsson fyrir Fróða  Ég myndskreytti líka Vikuna fyrir Fróða um tíma og myndskreytti smásögur í Lesbók Morgunblaðsins í c a. 12 ár. Myndskreytti eina sögu fyrir Fjölva líka. 

Svava frá Strandbergi , 14.8.2007 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband