Leita í fréttum mbl.is

Einkennileg alhæfing

Mér finnst það í meira lagi skrýtið þegar tekið er fram í fréttum að ódæðismenn hafi átt við geðræn vandamál að stríða.
Geðræn vandamál eru margvísleg og ekki eru allir þeir sem burðast með geðræna kvilla morðingjar, nauðgarar eða annað misindis fólk fremur en aðrir hópar sjúklinga.
Alla vega kæmi það betur út ef að tiltekið væri í fréttinni  að viðkomandi  geð sjúklingur hefði verið  haldinn, einhverjum tilteknum geðsjúkdómi sem mikið ofsóknaræði eða ofbeldishneigð fylgdi.

Ekki þar fyrir, menn þurfa ekki að vera veikir á geði til þess að vera illa innrættir eða ofbeldishneigðir, ekki frekar en þeir sem eru veikir á geði þurfi endilega að vera það .
  Þess vegna finnst mér að með svona fréttaflutningi sé stór hópur af  geðsjúklingum settur undir sama hatt svo almenningur getur hæglega dregið þá ályktun að allir þeir sem glíma við geðræna sjúkdóma séu stórhættulegir.

Fólk með andlega kvilla er eins misjafnt að geðslagi og það er margt og sem betur fer er það upp til hópa sauðmeinlausir sakleysingjar eins og flestir aðrir .
Það er helst að þessir einstaklingar vinni  stundum sjálfum sér mein en ekki öðrum manneskjum .

Það er líka fjöldi manna sem stríðir við geðræn vandamál en fúnkera þó ágætlega úti í þjóðfélaginu og gegna margir þeirra ábyrgðarstöðum.
Þetta fólk þarf aðeins að taka lyf sín reglulega eins og allir aðrir sjúklingar,, eins og  til dæmis hjartasjúklingar, gigtarsjúklingar og fleiri og fleiri.

 Það yrði heldur betur rekið upp ramakvein meðal þeirra er til sín gætu tekið, ef því yrði slegið upp í fyrirsögn eða frétt að einhver morðingi hefði átt við kransæðaþrengsli að etja.

 Það er nóg komið af þessum hálfvitalegu alhæfingum um geðsjúklinga og fordómum gagnvart þeim  sem og öðrum fordómum gagnvart öllu því sem við þekkjum ekki til hlítar.

 


mbl.is Fórnarlömb byssumanns syrgð í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Alveg merkilegt .... Geðræn vandamál eru svo mismunandi því er ekki að neita og ljótt að setja saman sem merki á geðræn vandamál.

www.zordis.com, 20.4.2007 kl. 21:47

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hef nú á köflum í lífi mínu verið svona "borderline" klikkuð, enda oft lent í erfiðum hlutum, en að gera eitthvað eins og að drepa aðra eða sjálfa mig hefur aldrei verið inn í myndinni, svo semsagt maður má aldrei alhæfa.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.4.2007 kl. 00:34

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Mikið er þetta góður pistill Guðný mín, og fyrir utan alhæfunar hlutann, kemur annað til og það er að ef einhver er með einhveja geðveilu meigi hann/hún nánast gera hvað sem er, notað sem afsökun, enda þekkt dæmi að fólk felur sig á bakvið slíkt sem er bara tilbúningur einn.

Sigfús Sigurþórsson., 21.4.2007 kl. 01:15

4 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Ákaflega læsileg og góð grein þar sem þú veltir upp mjög áhugaverðum atriðum sem heildin mætti reyna að greina betur á um.

Ragnar Bjarnason, 21.4.2007 kl. 11:39

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er allt rétt og satt sem þú ert að segja Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.4.2007 kl. 12:32

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Það sem mig undrar mest er sú holskefla fréttaflutnings og tímalengdar sem umfjöllun um  þennan  morðingja hefur verið undanfarið.  Hugsaðu þér hversu gífurlegur tími færi í,  ef sambærilegur lengdartími færi í umræður um  hroðaverk og viðbjóð þann sem framinn er dagsdaglega í  Írak?

Þorkell Sigurjónsson, 21.4.2007 kl. 23:40

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Keli einmitt.

Svava frá Strandbergi , 22.4.2007 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband