Leita í fréttum mbl.is

Sprenging!!

Vá maður!!
Ég skildi ekkert í því á sunnudaginn hvað ég var orðin rosalega vinsæl. Það voru komnar fleiri hundruð heimsóknir þegar ég leit á bloggið mitt. Ég var náttúrulega æðislega ánægð með mig en gat ómögulega skilið  hvernig á þessarri skyndilegu aukningu stóð. En hugsaði svo með sjálri mér að ég væri bara svona assskoti skemmtilegur bloggari og það hefði náttúrulega spurst út. En samt fannst mér skrýtið hve fólk hefði verið samstíga í því að taka við sér og átta sig á skemmtilegheitum mínum.


Svo hringdi bróðir minn í mig og hrópaði á mig í símanum. 'Svava ertu búin að sjá Moggann í dag''? Nei, sagði ég og hjartað í mér hoppaði hæð sína af skelfingu. Hvað hefur nú skeð, hvað er eiginlega í gangi, ætli það sé nú loksins komin kjarnorkustyrjöld?  Flaug í gegnum huga mér.
Bloggið þitt er í Mogganum´, æpti brósi móðursýkislega.  Bloggið mitt?  Sagði ég eins og hálfviti. ´Hvað áttu eiginlega við?'
'Nú þú veist að það eru stundum birt valin blogg í Mogganum', sagði bróðir minn og það gætti óþolinmæði í rödd hans yfir fáfræði minni. 'Það eru birtir úrdrættir úr þremur bloggum í dag,  en þeir birta bara alla færsluna þína', sagði hann öfundsjúkur.

Jæja, það var aldeilis! Þarna var þá komin skýringin á vinsældum mínum.
Ég var hæstánægð þegar ég tékkaði á blogginu mínu rétt fyrir kl. tólf í gærkvöldi og sá að heimsóknirnar voru komnar upp í 485 og ég trónaði í 95. sæti á vinsældalistanum.
Í dag er ég hinsvegar aftur orðin ein af almúganum og er bara með tæplega 90 heimsóknir

En ég fékk allavega að prófa hvernig það er að vera vinsæl í hvorki meira né minna, en einn heil langan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ó, ég skil. Takk Anna.

Svava frá Strandbergi , 13.3.2007 kl. 00:33

2 Smámynd: Agný

Til hamingju bloggvinkona  Það er alltaf gaman og kitlar pínku egótaugina hjá manni ef að skrif manns eru lesin ..og ekki síst ef að einhverjum líkar þau ..Mér finnst allavega gaman af að lesa skrifin þín þó ég sé kanski ekki alltaf alladaga en les þá meira í senn.  Kveðja frá Agný "náttuglu"...

Agný, 13.3.2007 kl. 03:15

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir kæru bloggvinir. 

Svava frá Strandbergi , 13.3.2007 kl. 12:00

4 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Til lukku, hér er gaman að lesa.

Ragnar Bjarnason, 13.3.2007 kl. 12:38

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Heppin Guðný, meyra en margur fær að prufa.

Sigfús Sigurþórsson., 13.3.2007 kl. 13:51

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Danke, tak, thanks, takk.

Svava frá Strandbergi , 13.3.2007 kl. 17:59

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég kýs nú að kalla það þotuliðið hr. Galdrameistari..

Svava frá Strandbergi , 13.3.2007 kl. 18:31

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Andskotans öfundssýki í þessum móðursjúka bróður þínum! Er hann kannski einhver botnleðjubloggari? 

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.3.2007 kl. 19:44

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ja, það má eiginlega segja að nú fyrst sé hann búinn að hitta botninn.  Jók

Svava frá Strandbergi , 13.3.2007 kl. 22:58

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Furðulegt..ég fékk næstum 500 heimsóknir í gær....var hvergi highlætuð á neinni forsíðu eða vinsældarbloggum....sem verður örugglega aldrei. Algert hástökk og ég hef ekki hugmynd um hvað gerðist.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.3.2007 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband