Leita í fréttum mbl.is

Ást, ást , ást, á laugardagskvöldi.

Ég kom mér makindalega fyrir í stofusófanum til þess að horfa á síðustu myndina í ríkissjónvarpinu í kvöld The End of the Affair eða Leiðarlok.

Ég verð að viðurkenna að ég grét eins og múkki yfir þessarri dásamlega rómantísku mynd og allri þessari ást. Þó læddust öðru hvoru að mér efasemdir um það hvort svona yfirnáttúrulega heit ást gæti verið til nema þá auðvitað í bókum og kvikmyndum eins og þessarri sem ég var að glápa á.

En svo komu kettirnir mínir Tító og Gosi upp í sófann til mín og fullvissuðu mig um það að heit ást væri svo sannarlega til í okkar veröld. Svo ég lét huggast, snýtti mínum rauða nebba og leyfði kislingunum að lúra í handarkrikunum og horfa með mér á það sem eftir var af myndinni. 

Svo þegar ég settist við tölvuna til að blogga um þessa góðu reynslu mína rak Tító náttúrulega upp sitt ógurlega vein því hann er svo afbrýðisamur út í tölvuna. Svo auðvitað endaði það með því eins og svo oft áður að ég varð að blogga með kafloðinn fresskött í kjöltunni, en sem elskar mig víst út af lífinu.

 scan0023

 TÍTÓ með stjörnur í augunum að horfa á mig.

Mér finnst það oft erfitt að blogga með Tító á hnjám mínum því hann er alls ekki fyrirferðarlítill.  En síðan ég sá fréttina í Ríkissjónvarpinu þar sem ljón faðmar að sér konuna sem það elskar, síðan hún bjargaði því illa höldnu úr sirkusi, þá  þakka ég Guði stundum fyrir það að Tító skuli bara vera köttur.


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég horfði líka. Ralph Fiennes frábær í hlutverkinu, sömuleiðis eiginmaðurinn sem hinn týpíski brezki háembættismaður. Myndin fór óvænt út á mjög ásættanlegar brautir fyrir mig kaþólikkann í seinni partinum eða undir lokin. Snjall söguþráður og myndatakan óaðfinnanleg.

Jón Valur Jensson, 14.1.2007 kl. 04:14

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir þessa athugasemd Jón Valur. Mér fannst þessi óvænti endir

vera toppurinn.

Svava frá Strandbergi , 14.1.2007 kl. 04:25

3 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Hef ekki séð myndina mér vitanlega, en ég get fullvissað þig um að eld-eldheit ást er til :) Hvort allir leyfa sér að detta í slíkt eldhaf er önnur spurning.
Gucci mín liggur líka yfirleitt í kjöltu mér þegar ég blogga. Ég er alveg hætt að taka eftir henni, enda smágerð. Ef ég rek augun í hana, og verð gripin óumræðilegri væntumþykju og bara VERÐ að knúsa hana - þá verður fljótt ljóst að kettir kunna ekki bara að mjálma og mala: þeir kunna að urra líka :)

gerður rósa gunnarsdóttir, 14.1.2007 kl. 18:36

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég hef svo sem yljað mér við það eldhaf en því miður getur það brennt mann illilega líka.

Já kettir eru eins mismunandi að skapferli og við mennirnir. Tító sem er

átta ára balenese köttur hefur aldrei urrað á mig. En aftur á móti vælir hann hátt ef honum finnst ég ekki knúsa hann nóg. 

Svava frá Strandbergi , 14.1.2007 kl. 18:51

5 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Já, mín er af sérstöku ruslatunnukyni, það kannski skýrir það.
En ég bara verð að segja þér frá því að ég er búin að liggja í kortershláturkasti yfir athugasemd sem þú skrifaðir einhverntímann varðandi kvenutan ríkisráðherra. JESÚS minn hvað það var fyndið!

gerður rósa gunnarsdóttir, 14.1.2007 kl. 21:05

6 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Þetta minnir mig nú á lífssýn Grikkjans. Hér er hægt að lesa grein um hvað gæludýr geta verið manni kær, en svo er bara hægt að EIGA gæludýr. Málið hjá Grikkjanum var krítíkk á ofuráherslur á teoríur og bóklestur, í staðinn fyrir að gera hlutina live.

gerður rósa gunnarsdóttir, 14.1.2007 kl. 21:11

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jæja Gerður,svo þú hefur svipaðan húmor og ég. Mér fannst þetta nefnilega sjálfri soldið fyndið.  Þakka þér samt fyrir að láta mig vita að ég hafi 'hlætt' þig, (nýyrði, sm.b. grætt)

Svava frá Strandbergi , 15.1.2007 kl. 15:20

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki ætla ég að fá mér gæludýr. Langar reyndar helst í ljón. En ég get ekki lagt það á neina skepnu að búa með mér!

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.1.2007 kl. 01:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband