Leita í fréttum mbl.is

Einn svolítið grófur, en ég læt hann vaða.

Tveir gamlir kallar eru að labba í Rauða hverfinu í Amsterdam þegar annar þeirra segir við hinn. 'Jæja, hvernig væri nú að skella sér á hóru úr því að við erum komnir hingað?'
Ha - já, segir hinn  - það er dálitið sniðug hugmynd og mig hefur alltaf langað til að prófa.
Þeir labba inn á næsta stað þar sem verið er að auglýsa konur til sölu og mæta þá eldri konu, sennilega hórumömmunni og spyr hún þá hvað þeir vilji.

'Já, - okkur langar að prófa að vera með hóru'
'Jæja, og hvað eruð þið gamlir?'  'Við erum áttræðir'.  'Jæja, allt í lagi, komið þið þá'.
Þeim gömlu er vísað til sætis og konan kallar á eina unga og fallega stúlku og hvíslar að henni.
'Láttu þá bara fá uppblásnu dúkkurnar, þeir eru svo gamlir að þeir taka ekki eftir neinu'.
Svo fóru þeir gömlu upp og í sitthvort herbergið.

Stuttu síðar hittast þeir fyrir utan og segja fátt, þangað til annar þeirra  segir. 'Jæja, - hvernig fannst þér þetta?'  ' Ja, - sko, ég held að mín hafi verið dáin'.  'Hún hreyfði sig ekkert og bara lá þarna, en hvernig fannst þér?'
'Ég held að mín hafi verið norn, því í hita leiksins beit ég í aðra geirvörtuna á henni og þá rak hún svona ferlega við og flaug svo út um gluggann'.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Góður þessi

Því miur er það ekki hægt aðþví að ég bý í Danmörku, annars hefði ég verið meira en til í einkakennslu.

Knús til þín

Kristín Gunnarsdóttir, 8.4.2008 kl. 19:29

2 Smámynd: www.zordis.com

Þessi er nú bara rosa krúttaður.  Minn svo lítið á gamla  kallin sem fór til dk og tók ofan fyrir ostinum gamla Ole og bauð god aften!

bestu kveðjur!

www.zordis.com, 8.4.2008 kl. 19:49

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábær, alltaf gott að hægja, góða nótt 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.4.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, Kristín því miður fæ ég þig ekki sem nemanda. Knús til baka.

Zordís, Hahahahahíhíhíhíhahahahahahahahahæ

Já, Guðmundur ég hló rosalega þegar ég las þennan brandara. Ég var stödd á virðulegri biðstofu,  sem var full af fólki  og var að lesa eitt af blöðunum þarna á biðstofunni og rakst þá á þennan brandara. Það gláptu allir á biðstofunni  á mig eins og naut á nývirki þegar ég skyndilega rak upp þennan líka skellihlátur, eins og einhver ga ga vitleysingur.

Já, það er hollt að hlæja Ásdís, líka að dónalegum bröndurum. Góða nótt. 

Svava frá Strandbergi , 8.4.2008 kl. 23:13

5 Smámynd: Lovísa

Lovísa , 9.4.2008 kl. 11:28

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Blessi þig

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.4.2008 kl. 17:34

7 identicon

Það er alltaf verið að svindla á eldri borgurum.

Diddi (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 21:08

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Blessi þig líka Steina.

Já, Dr. Jekyll minn, synd að gömlu kallarnir skyldu ekki fá það almennilega, því þeir hafa örugglega verið látnir borga toppverð. En eins og þú og ég segjum  alltaf og allsstaðar skal vera svínað á eldri borgurunum.

Svava frá Strandbergi , 9.4.2008 kl. 22:59

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þessi er góður

Kristín Katla Árnadóttir, 10.4.2008 kl. 16:05

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 11.4.2008 kl. 00:18

11 Smámynd: Lovísa

Innlitskvitt

Góða helgi,

Kveðja, Lovísa.

Lovísa , 11.4.2008 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband