Leita í fréttum mbl.is

Ógnaröfl Please help me? Hvernig á þessi mynd að snúa og hvað sjáið þið út úr henni?

DSC00011 Ógnaröfl 3 small

Á hún að snúa svona?   Hvað sjáið þið út úr henni þá? Myndin er ekki svona ljós á litinn,

Er þetta mynd af sjóflóði úr fjallaskarði kannski? 

DSC010010 Ógnaröfl 2 small

Svona? Hvað sjáið þið þá út úr henni? 

Er þetta kannski mynd af brimi við ströndina? 

Eða svona kannski og af hverju er hún þá? 

Er þetta kannski snjóhengja að falla fram af veðurbörðum kletti? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér Finns síðasta myndin vera mjög flott en ekki held ég að þetta sé snjóhengja, allar3 myndirnar eru góðar  Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 6.2.2008 kl. 18:27

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Miðmyndin heillar mig, þetta er hellir álfkonu á ísalagðri spöng.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.2.2008 kl. 19:50

3 Smámynd: www.zordis.com

heheheh .... mér finnst fyrsta myndin segja HAFDJÚP ég sé lífríkið og fíla myndina vel í djúpinu.

Flott mynd og ég panta námskeið í sumar hjá þér!

www.zordis.com, 6.2.2008 kl. 22:08

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Katla, ég er sjálf hrifnust af að myndin snúi svona. Mér finnst þetta vera mynd af standbjargi út við sjó. Bjargið sést frá efstu brún og alla leið niður að sjávarmáli  og það er snjórhengja fallin  fram af brúninni og á leiðinni niður.

Já, Ásdís, þetta gæti líka verið hellir álfkonu á ísalagðri spöng.

Zordís, takk, þú sérð allt annað en ég, en það er einhvern veginn hægt að sjá svo margt út úr myndinni svo ég er ennþá engu nær um hvernig ég á að láta hana snúa. 

Svava frá Strandbergi , 6.2.2008 kl. 22:26

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þetta er allt sama myndin (held eg) en ég held hun snui rett eins og neðsta.ljosmyndin er.

Eg se jökla, horfi úr flugvel niður á undrafallegt landsvæði í ísaköldu landi.  

Marta B Helgadóttir, 6.2.2008 kl. 22:39

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þú átt kollgátuna Marta, þetta er allt sama myndin. En já, mér finnst hún líka snúa rétt eins og hún er neðst.

Svava frá Strandbergi , 6.2.2008 kl. 23:18

7 Smámynd: Bjarni Magnússon

Þetta er klárlega kort sem vísar á leynihvelfingu musterisriddara á kili.

Samkvæmt hefðum í kortagerð á norður að snúa upp. 

Bjarni Magnússon, 6.2.2008 kl. 23:37

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jhá, Bjarni, kannski ég kalli myndina Musterisriddakortið af leynihvelfingunni á Kili. Flott nafn.

Svava frá Strandbergi , 6.2.2008 kl. 23:58

9 Smámynd: Bjarni Magnússon

Gæti ómögulega heitið neitt annað. Annars er þetta falleg mynd hjá þér. 

Bjarni Magnússon, 7.2.2008 kl. 00:28

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk

Svava frá Strandbergi , 7.2.2008 kl. 00:35

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta er mögnuð stemmning. Mér finnst þetta minna á sjávargróður .... þang og slíkt augna - og lyktarskynsyndi (NB: þrjú ypsilon). Hvaða tækni er notuð þarna?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.2.2008 kl. 21:22

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Danke schön, Hallgerður og Guðný Anna. Tækina hef ég þróað svona dálítið sér á parti, en hún er þrykk og málað ofan í með  olíulitum.

Svava frá Strandbergi , 7.2.2008 kl. 23:55

13 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Mér finnst fyrsta myndin og kannski önnur líka, vera svona "Í lífsins ólgu sjó". Síðasta útgáfan af henni finnst mér hins vegar vera lítil hvít geit að rölta á afturfótunum að segja eitthvað heilmikið ...  

Skemmtilegt að skoða frá ýmsum sjónarhornum

Ragnhildur Jónsdóttir, 8.2.2008 kl. 17:28

14 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Mynd nr. 2 (ég sé ekki mynd nr. 1) er af konu á tvífættum og mjög stuttæfttum hesti, jafnvel úlfalda. Hún er af arabískum ættum þessi kona, og hún er að hefja ferð sína út í buskann, allt er bjart framundan og afar skemmtilegt og margslungið. En hún hikar og lítur til hægri (frá okkur séð), því þar kemur arkandi stór og stæðilegur hestur, og er það tákn karlmannsins ... þótt eiginlega sjáist aðeins í afturhluta hins stæðilega hross ...
Éég myndi kalla þessa mynd: Tjáskipti
(Rohrschach this!)

Síðasta myndin er ekki jafn hressandi, eins og hún snýr; hálfgerð fiskifýla af henni, þrátt fyrir rottukanínuna lengst til hægri, en hún hangir þar hnípin og þunglyndisleg. Og svo er þarna steindauður steinbítur í botninn.

Nei, í síðustu myndinni er sko allt á niðurleið, á meðan hin fyrri hressir og kætir ...
:) 

gerður rósa gunnarsdóttir, 14.2.2008 kl. 19:25

15 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, svei mér þá Gerður, þetta er algjörlega rétt hjá þér!! Ég var raunar ekki meðvituð um hvað ég var að mála því ég var búin að drekka fjóra bjóra, hvern á eftir öðrum  og eina og hálfa flösku af Uzo, áður en ég byrjaði á myndunum. En svona er þetta, það er ekki öllum gefið að sjá það sem höfundurinn vill með  undirmeðvitund sinni, koma á framfæri í myndum sínum. En ég er búin að ákveða mig ég ætla að láta myndina snúa eins og þessi númer 1 sem af einhverjum ástæðum sést ekki lengur??? Ég ætla að kalla hana 'Deja vu'.

Ég er að fara til Danmerkur seint í maí. Verð þar í sumarbústað í Gilleleje sem er smábær á Sjálan,di ekki svo langt frá Köben. Þarna er strönd og alles. Ho Ho, ég kemst til Danaveldis á undan þér. 

Svava frá Strandbergi , 15.2.2008 kl. 01:26

16 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Gerður, úlfaldar eru háfættir, svo þetta getur ekki verið úlfaldi. Auðvitað er þetta tvífættur hestur. Sérðu hvað hann lítur hræðslulega aftur fyrir sig með þessu eina risastóra auga sem hann hefur. Er örugglega nervus um að stóra hrossið taki æðiskast og bíti sig.

Svava frá Strandbergi , 15.2.2008 kl. 01:33

17 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Hurru ég hef verið í Gilleleje, svei mér þá. Fór þangað með móður minni þegar ég var um 13 ára - drakk Tuborg og vodka allan tímann :) Það er allt í lagi þótt þú farir á undan mér til Danmerkur, þú skilur bara smá eftir af henni handa mér þegar þú ferð ...
Svava, sko; ef þetta er ekki stuttfættur hestur, þá er þetta enn þá stuttfættari úlfaldi - svo er þetta kynjadýr tvífætt, sem passar hvorki við hest né hund, hvað þá úlfalda, helst þá strút kannski. Og svo er þessi úlfaldastrútur alls ekkert hræddur heldur skellihlægjandi. Það er þarna greinilega heill dýragarður í myndinni og alls ekki öll kurl komin til grafarans ... svona eru nú svona expressjónískar myndir stórskemmtilegar; endalaust eitthvað nýtt og aldrei búið ... ;)

gerður rósa gunnarsdóttir, 18.2.2008 kl. 15:54

18 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jæja. svo þú varst í Gilleleje þegar þú varst 13 ára og bara í búsinu svona ung? Ég byrjaði ekki fyrr en á 17 ára afmælisdaginn minn, á þjóðhátíð í Eyjum, og hef verið íðí síðan, með smáhléum inn á milli.

Vertu óhrædd um að eitthvað verði eftir af Danmörku,  þegar þú kemur.þangað Annars gæti ég svo sem vel hugsað mér að taka land Gefjunnar með mér heim. En ég enga uxa né plóg ennþá, svo það verður að bíða. Allavega þar til þú flytur til Danaveldis , þá kem ég og dreg ekki bara Sjáland heldur líka Fjón og Jótland heim til Íslands. Þá verður nú stutt að skreppa til Köben og heimsækja þig og asnana, hundana og hænuna.

Það er flott að þú sérð svona mikið út úr myndinni minni. Ég er mjög ánægð með það og vildi helst fá þig sem gagnrýnda á sýninguna mína í apríl. 

Svava frá Strandbergi , 18.2.2008 kl. 23:18

19 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég er nokkuð sjúr á því að þetta sér rétt niðurstaða hjá þér, að þetta sé stuttfættur úlfaldastrútur á myndinni og alveg stútfullur meira að segja, sýnist mér. En, á ekki að segja 'ekki öll kurl komin til grafar? , frk. prófarkalesari?

Svava frá Strandbergi , 18.2.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband