Leita í fréttum mbl.is

Garðvinna er 'gaman saman.'

Þetta er búinn að vera fínn dagur 'so far' Það var garðhreinsunar dagur hjá okkur í stigaganginum í dag kl. 14.
Ég tók mig til með garðhanska, verkfæri og stól sem hægt er að brjóta saman og hélt í leiðangur um  húsið að smala.
Litháíski formaðurinn á fjórðu hæð var til í að koma en sagði samt á sinni bjöguðu íslensku
' Hvað við bara verða tvær?' Nei, nei, svaraði ég, það hljóta að koma fleiri, við þurfum bara að banka hjá öllum.
Þegar ég barði að dyrum hjá vinkonu minni gjaldkeranum kom hún til dyra á náttkjólnum nývöknuð, enda vinnur hún vaktavinnu. Hún stakk sínum úfna haus milli stafs og hurðar  og þvertók fyrir að koma út í garð. Það væri skítakuldi og hífandi rok. Hvaða vitleysa,  sagði ég, það er mjög heitt úti og þó að það sé smá vindur þá er golan hlý.
Vinkona mín tautaði eitthvað ófagurt fyrir munni sér og skellti hurðinni á fésið á mér.
Mér heyrðist hún segja. 'Þú getur tekið til í þessum andskotans garði þínum sjálf.'  En þar sem ég var í góðu skapi og vissi að vinkona mín hafði bara stigið öfugu megin fram úr rúminu, lét ég þessi orð sem vind um eyru þjóta og hélt að næstu dyrum.
Jú, jú þau ætluðu að koma eftir smástund. Á einum stað var enginn heima en í næstu tveim íbúðum var vinnufúst fólk.
Það endaði með því að við vorum orðin sjö sem tókum til í garðinum okkar. Meira að segja vinkona mín gjaldkerinn sá að sér og mætti á staðinn með hundinn sinn, sem lagði sitt af mörkum með því að vökva tré og runna með  náttúrulegri gróðurblöndu sem hann framleiðir sjálfur.

Við tíndum allt ruslið sem safnast hafði fyrir um veturinn. Okkur sýndist mestur parturinn af því vera frá því á gamlaárs kvöld enda er fólk í þessu hverfi óvenju duglegt við að skjóta upp flugeldum, sumir ungir menn eru meira að segja ennþá að sprengja öðru hvoru.

Við enduðum á því að sópa bílaplanið og stéttina fyrir framan húsið. Við vorum sammála um það að það væri bara gaman að vinna svona saman. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ég er allavega sammála því að það er gaman að vinna úti í garði. Var úti í garði í allan dag að taka upp kartöflur, og var farin að taka afleggjara af öllu sem ég sá áður en ég vissi af, risastóran kaktusafleggjara meira að segja. Ótrúlega hressandi svona útivinna. Hundarnir smituðust af vinnugleðinni og grófu þessa líka gígantísku holuna og athuguðu einnig vel og vandlega hvort einhverjar kartöflur hefðu orðið eftir í kartöflubeðinu.
Duglegir hundar sem ég á og láta ekki sitt eftir liggja við garðvinnuna.

gerður rósa gunnarsdóttir, 29.4.2007 kl. 18:07

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já hundarnir láta ekki sitt eftir liggja í að hjálpa eigandanum og fleirum. En getur þú tekið afleggjara af kaktusi úti í garði hjá þér? Það eru nú bara nýútsprungnir krókusar í garðinum okkar en túlipanarnir, og hvítasunnuliljurnar eru óútsprungnar. 'Það aldin út er sprungið og ilmar sólu mót.' etc.

Svava frá Strandbergi , 29.4.2007 kl. 18:15

3 Smámynd: www.zordis.com

Já, ertu ekki endurnærð eftir daginn og alíslenska náttúruna?  Smúts á þig kæra ....

www.zordis.com, 29.4.2007 kl. 18:21

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jú mér líður mjög vel. Smúts til baka zordís mín.

Svava frá Strandbergi , 29.4.2007 kl. 18:47

5 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Hér er komið hávaðasumar og allt vaðandi í gróðri, og það er hægt að éta helling af þessu, m.a.s. kaktusinn - eða ávextina sem hann ber, það sýndi kerlingin í næsta húsi mér, og af slíku tek ég afleggjara. Tók samt óvart 2 rósaafleggjara líka; þeir duttu bara einhvernveginn upp úr jörðinni, svo ég varð að taka þá líka.
Nú ætla ég sko að gerast garðyrkjukerling ... og listmálari auðvitað - það passar svo vel saman.

gerður rósa gunnarsdóttir, 29.4.2007 kl. 19:01

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Óska þér til hamingju með ákvörðunina um að gerast garðyrkjukerling og vertu velkomin í hópinn garðyrkjukerlingarlistmálari. 

Svava frá Strandbergi , 29.4.2007 kl. 19:09

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert dugleg Guðný mín að að taka til í garðinum

Kristín Katla Árnadóttir, 29.4.2007 kl. 21:32

8 Smámynd: Agný

Ég gerðist svona garðvinnukonu smátíma í dag..klippti runna og setti afklippurnar í vatn til að láta það ræta sig....

Ætla að nota það til að búa til fleirirunna...Þetta var alaskavíðir en hann er það al harðgerðasta þannig að ég reikna með að hann komi vel til og svo er hann svo fljótsprottinn..

En ég verð að fara að gera eitthvað í því að endurvekja listagyðjuna í mér...

Agný, 30.4.2007 kl. 20:02

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég er kannski vitlaus í þessu en þarf að láta afklippurnar ræta sig? Ég sá það í sjónvarpinu að trjábóndi uppi í sveit kippti grein af alaska já það var alaska ösp en ekki víðir. Anyway, ég hef sett niður að ráði mágkonu minnar afklippur af alaskavíði beint oní moldina og það gekk alveg. En liklega eru margar aðferðir jafngóðar. Já endilega farðu og vektu listagyðjuna sem blundar í þér. Er hún ekki búin að sofa út?  Smúts  

Svava frá Strandbergi , 30.4.2007 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband