Leita í fréttum mbl.is

Ættleiðingar og ánamaðkar

Sniðug þessi læða þarna sem ættleiddi músina. Hvað henni gengur til með þessu er ekki gott að segja,  en kannski ætlar hún að spara sér sporin og hafa þessa mús´ready´ fyrir kettlingana sína þegar þeir verða komnir á þann aldur að hún þarf að fara að kenna þeim að veiða sér mýs?
Það er heldur ekki verra fyrir hana að nýta sér músina út í ystu æsar eins og hún gerir víst og láta hana hjálpa til við barnauppeldið þangað til hún verður étin, það er að segja ef kettlingarnir fá það af sér þegar þar að kemur,  að leggja sér barnfóstruna til munns.
Annars eru óþekkir krakkar og kettlingar til alls vísir,  enda ekki öruggt að músin plummi sig eins vel og Mary Poppins í  barnfóstru hlutverkinu .
En þangað til  skulum við vona það besta músarinnar vegna. 

Kettir eru svo sannarlega mestu ólíkindatól og taka upp á hinum furðulegustu tiktúrum, eins og til dæmis að færa fólkinu sínu dauðar mýs í matinn, eða jafnvel draga ánamaðka upp úr jörðinn með ærinni fyrirhöfn og dröslast með þá heim í hús til þess að færa þá í búið. 
Svona ánamaðka árátta er nýjasti ósiðurinn sem köttur systur minnar hefur tileinkað sér.
Hann tínir maðkana helst í rigningu eins og alsiða er.  Bítur í bláendann á þeim þegar þeir gægjast upp úr moldinni og stendur svo upp á afturlappirnar til þess að geta togað þá betur upp úr jörðinni með vogarafli.
Maðkana leggur hann svo snyrtilega í röð á eldhúsgólfið hjá matmóður sinni.
Ég lagði það til við systur mína í símanum í dag,  að reyna nú að græða á þessu uppátæki kattarræsknisins þegar laxveiðtíminn fer að byrja og selja helv.... maðkana.
Segið þið svo að kettir séu einkis nýtir.

 


mbl.is Köttur ættleiddi mús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

vá systir þín á sniðugan kött! hann vill vinna fyrir sér blessaður.

halkatla, 13.4.2007 kl. 22:48

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kisur eru bara kúl. Hvernig líður þér annars núna?? ég er í blogg æði í dag.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.4.2007 kl. 22:57

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Mér líður ekki nógu vel. Það var verið að lagfæra skurð sem var komin svo mikil bandvefsmyndun í og nú er ég komin með húðsýkingu út frá nýja skurðinum og einhverja andskotans sveppasýkingu líka í kring.

 En ég er komin með sýklalyf og sterakrem við þessu.

Annars var ég að fá einhver þrumu fæðubótarefni hjá Partners og ætla

kannski að fá annað sem á að laga ónæmiskerfið

Svo er ég að drepast í bakinu og hnénu en er samt að vinna við að myndskreyta bók og blogga náttúrulega. 

Svava frá Strandbergi , 14.4.2007 kl. 01:43

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Anna Karen, Tobías, hann heitir það kisinn,  er bráðduglegur .

Svava frá Strandbergi , 14.4.2007 kl. 01:47

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir innlitið Guðmundur minn.

Svava frá Strandbergi , 14.4.2007 kl. 10:35

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æji, ekki gott að heyra með heilsuna. Sýndist nú samt á þér þegar ég hitti þig í síðustu viku að það þurfi mikið til að buga þig, baráttukveðjur og góðar hugsanir frá mér.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.4.2007 kl. 12:44

7 Smámynd: www.zordis.com

Slæmt þegar heilsan tekur sér frí!  Vona að þér líði sem best og vertu dugleg og jákvæð ........  hlakka til að sjá úr bókinni!

www.zordis.com, 14.4.2007 kl. 14:21

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Elsku kellingin...hókus pókus....göldrum allt í jafnvægi og heilsuna í lag. Segi það líka..hlakka til að sjá myndskreytingarnar. Hafðu það ógó gott um helgina.Knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.4.2007 kl. 17:40

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ásdís, Zordís, Arna og Katrín, knús til ykkar. 

Svava frá Strandbergi , 14.4.2007 kl. 20:07

10 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

láttu þér batna...fallegar hugsanir héðan...

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 14.4.2007 kl. 23:59

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Nú var þetta Tobías en ekki Ronja! Voðaleg  knús eru þetta. Hér er eitt í viðbót til herra Títós .

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.4.2007 kl. 00:32

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, og svo blogga ég ónáttúrulega!

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.4.2007 kl. 00:33

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Anna mín, sendi þér líka fallegar hugsanir.

Svava frá Strandbergi , 15.4.2007 kl. 02:19

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég skal skila kveðjunni til herra Títós Nimbus, annars er hann alltaf sofandi orðið, ekki beint í stuði núna frekar en húsmóðirin.

En mér finnst boggin þín vera svo assgoti náttúruleg, Nimbus minn?  

Svava frá Strandbergi , 15.4.2007 kl. 02:27

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvaða bogg ertu að tala  um? Er það eitthvert nýtt form?

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.4.2007 kl. 11:36

16 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég segi nú eins og þú forðum, alltaf skal það  vera notað manni til háðungar ef manni verður fingraskortur á lyklaborðinu. 

Svava frá Strandbergi , 15.4.2007 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband