Leita í fréttum mbl.is

Stúlkan í græna kjólnum þrykk- og blek

tscan0010

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Whoooa! Rosalega falleg. Ég sá hana ekki fyrst en svo birtist hún bara allt í  einu út úr þessu magnaða litaflóði.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.2.2007 kl. 19:45

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Danke schön!!         Ég er svona að testa á því hvað sé sýningarhæft með þessum myndbirtingum mínum.

Svava frá Strandbergi , 15.2.2007 kl. 20:01

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ertu að fara að halda sýningu?

Hvar ?

Hvenær? Mig langar að koma.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.2.2007 kl. 20:52

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það verður nú ekki fyrr en einhvern tímann næsta vetur Katrín mín. Ég sendi þér örugglega boðskort.

Svava frá Strandbergi , 15.2.2007 kl. 23:32

5 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Kröftug mynd. Það tók mig líka smá tíma að koma auga á stúlkuna. Skemmtilegar myndir sem eru ekki augljósar og maður þarf að rýna í.

gerður rósa gunnarsdóttir, 16.2.2007 kl. 17:39

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir Arna og Gerður Rósa.

Svava frá Strandbergi , 16.2.2007 kl. 22:14

7 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Mikið lifandis ósköp væri gaman að hafa svona sköpunargáfu í höndunum,þær eru dæmalaust fallegar myndirnar þínar.

Pétur Þór Jónsson, 16.2.2007 kl. 22:18

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Klíptu nú Tító nettlega í skottið frá mér í viðurkenningarskyni fyrir felumyndina hennar mömmu sinnar. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 16.2.2007 kl. 22:40

9 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Hvað er Siggi að fara, myndin er svo augljós þó svo ég sjái ekki mikinn grænan lit í kjólnum, kannski er ég litblindur... held samt ekki.

Pétur Þór Jónsson, 16.2.2007 kl. 23:44

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jamm. þú segir að ég eigi að klípa Tító nettlega í skottið Nimbus, frá þér. Þakka þér fyrir að muna eftir Tító greyinu, það var fallega hugsað.
En ég held því miður að hann verði að eiga kveðjuna inni því ég er búin að hrella hann í allan dag með því að reyna að þræla oní hann sterunum og hann má bara ekki við meiru í bili, ekki einu sinni þínu súper netta klípi.
Fyrst reyndi ég eins og venjulega að troða pillunni oní hann með smjörklípu en gafst upp eftir að hann var búinn að bíta mig þrisvar, dálítið fast, og skyrpa froðufellandi töflunni jafnoft út úr sér.
Hann fékk meira að segja hálfgert asmakast út af þessarri hrikalegu píningar herferð minni og var orðinn verulega fúll út í mig. Svo seint í kvöld datt mér í hug að mylja pilluandsk. og blanda saman við volgt vatn og saug þetta svo upp í smá sprautu. Svo læddist ég að honum þar sem hann lá og dormaði dauðþreyttur eftir hamaganginn, strauk honum blíðlega um vangann og glennti svo leiftursnöggt upp á honum ginið og skaut gumsinu oní kok á honum. Ég er viss um að hann strækar á að sofa hjá mér í nótt eftir þessar aðfarir, svei mér þá!!

Svava frá Strandbergi , 17.2.2007 kl. 00:00

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir hólið Pétur minn.

Svava frá Strandbergi , 17.2.2007 kl. 00:01

12 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Óbrigðult ráð til að koma pillum ofaní dýr: eiga t.d. soðin lungu (eða lifur, samt  meiri hætta á að molni í sundur), hjörtu og nýru líka góð (allt sem auðvelt er að skera í og sem molnar ekki), skera smá gat í einn lítinn bita og troða pillunni þar. Gefa svo þegar er sem gráðugastur svo hann fari ekki að narta það í sundur og gleypi það í heilu lagi. Sparar agoní á báða bóga.

gerður rósa gunnarsdóttir, 17.2.2007 kl. 11:08

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Heyrðu Rabbar, ef vel er að gáð sést blámaðurinn hálfur oní blóminu. Ég held svona við nánari umhugsun að ég verði hafa þessa mynd tvöföldu verði.

Gerður Rósa Þakka þér fyrir ráðið. Tító hefur líklega lekið einhverju af gumsinu út út sér í gær. Hann er eitthvað svo slappur í dag. Svo ég verð að reyna að fara að þínum ráðum.

Svava frá Strandbergi , 17.2.2007 kl. 14:53

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jæja Rabbar! Þú ert bara búinn að semja heila sögu við myndina af stúlkunni í græna kjólnum. Mér líst bara vel á söguþráðinn. Við verðum endilega að fara að vinna saman. þú semur en ég myndlýsi. Ok.?

Svava frá Strandbergi , 17.2.2007 kl. 23:37

15 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Það ættirðu ekki að gera, ég á bókina hans Tolla með texta Eftir Thor V. og mér finnst textinn taka frá mér of margar myndir, hef reyndar aldrei verið hrfinn af skrifum hans, finnst hann rembast eins og rjúpan við staurinn við að stæla Kiljan, bara mín skoðun.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 23:29

16 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Það ættirðu ekki að gera, ég á bókina hans Tolla með texta Eftir Thor V. og mér finnst textinn taka frá mér of margar myndir, hef reyndar aldrei verið hrfinn af skrifum hans, finnst hann rembast eins og rjúpan við staurinn við að stæla Kiljan, bara mín skoðun.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband