Leita í fréttum mbl.is

Ég verđ ađ fara ađ heimsćkja hana Krúttu....

eins og ég kalla hana Katrínu vinkonu mína. Hún er nýorđin mamma í annađ sinn og eignađist lítinn son sem er örugglega jafn mikiđ krútt og hún mamma sín.
En ég hef bara ţví miđur ekki ennţá séđ litla og stóra krúttiđ síđan ţau urđu mćđgin og litu hvort annađ augum í fyrsta sinni.
Kristinn er eldri bróđir litla krúttsins og er ađ verđa fjórtán ára sem er svolítiđ mikill munur á milli brćđra en ţađ er bara fínt. Ég held nefnilega ađ Kristinn geti orđiđ fyrirtaks barnapía ţegar fram líđa stundir. Alla vega er hann mjög ábyrgđarfullur bróđir segir Katrín krútta mamma hans. Hann má líka vera ţađ ţví ţađ verđur ađ passa litla krúttiđ mjög vel svo enginn steli honum, ţví mamma hans segir ađ hann sé svo fallegur ađ hún hafi aldrei séđ annađ eins.
Ţví trúi ég líka vel ţví Katrín krútta vinkona mín er ákaflega falleg kona svo litli krútti á ekki langt ađ sćkja fríđleikann.
Mér finnst svo skrýtiđ ađ Katrín krútt sé nýbúin ađ eignast barn ţví mér finnst eins og ţađ hafi veriđ í gćr sem viđ endasentumst upp og niđur skógivaxnar brekkurnar viđ Elliđavatn til ţess ađ finna hentugan stađ til ţess ađ mála á. 
Endasentumst er kannski fullmikiđ sagt ţví viđ vorum međ trönur og stóla og málningardót og nesti og myndavélar, já og okkur sjálfar.
Viđ vorum ţví orđnar ansi ţreyttar ţegar viđ loks römbuđum á dásamlegan stađ út á ystu brún á smáhćđ sem hallađi snarbratt niđur ađ stóru og stćđilegu grenitré.
Viđ settum upp trönurnar og svo máluđum viđ og máluđum og máluđum eins og snarbrjálađir listamenn. Myndirnar okkar voru samt mjög ólíkar ţó ţćr vćru af sama útsýninu, enda erum viđ Ka

trín mjög ólíkar hvor annarri.
Mér fannst Katrínar mynd miklu betri en mín ţegar ég teygđi mig út á hliđ til ţess ađ skođa hana. Varđ mér svo mikiđ um ţessa uppgötvun ađ ég kollsteyptist af mínum stóli og rúllađi síđan niđur alla brekkuna ţar til ég loks stöđvađist á grenitrénu sem áđur var minnst á.
Katrínu datt ekki til hugar ađ hjálpa mér enda var hún ekki vitund hrćdd um mig. Ţađ komst engin hrćđsla ađ í  hennar fallega haus ţví hún hló svo mikiđ ađ ţessarri skyndilegu rússíbana ferđ minni fram af hćđarbrúninni.
Ég lét fall mitt mér ađ kenningu verđa og hćtti ađ mála en tók mynd af Katrínu krúttu í stađinn ţar sem hún sat viđ trönurnar og málađi, auđvitađ.

scan0037

Ljósmyndin varđ allavega góđ, svo góđ ađ ég sćttist á ţađ ađ Katrín vćri bara svona miklu klárari međ olíulitina heldur en ég.
Ţađ rann upp fyrir mér seinna af hverju myndin af Katrínu krúttu vinkonu minni varđ svona góđ.
Ţađ var vegna ţess eins og hún sagđi mér seinna ađ ţá var litla krúttiđ hennar ţegar byrjađ ađ vaxa inni í henni.
Sjáiđi bara hvađ myndin er flott eins og ég sagđi. Svo verđ ég bara ađ fara ađ drífa mig á nćstu dögum ađ sjá litla krúttiđ hennar Katrínar vinkonu, krúttu minnar.

Grease Babies
http://members.shaw.ca/anabw/grease.htm


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband