Leita í fréttum mbl.is

Myndlistarneminn. Fyrrum ljóð dagsin á Ljóð.is

Það er ekki mikið meira
sem ég get kennt þér.
Þú ert geðveikur snillingur
og kannt þetta allt saman.

Nema kannski það
að trúa á sjálfan þig
og pæla ekki alltaf í því
hvað aðrir segja um þig á bak.

Þú ert illa til fara
og hefur slæma borðsiði
en þegar ég lít í augu þín
sem oftast eru slikjuð af lyfjaneyslu
og þú brosir til mín og blikkar mig
til að sýnast svalur

þá stendur mér á sama um geðveikina.

Því þrátt fyrir allt þá ertu svo helviti náttúrulegur
- að ég get ekki annað en elskað þig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband