Leita í fréttum mbl.is

Þessi heimur okkar er helvíti fyrir margar konur

Hvers eiga konur að gjalda, mér er spurn?
Konur eru giftar nauðugar, seldar til kynlífsþjónustu oft barnungar og stundum myrtar í kjölfarið, nú eða þá að það er bara dundað við að misnota þær kynferðislega heima fyrir af feðrum, öfum, bræðrum, frændum eða öðrum heimilisvinum, þær eru barðar sundur og saman af eiginmönnum sínum eða kýldar í klessu, ófáar eru drepnar með því að hellt er yfir þær sjóðandi olíu af tengdafólki sem er óánægt með heimamundinn er fékkst með þeim. þær eru slegnar í rot af húsbónda sínum og á meðan þær liggja í rotinu  sparkar hann í brjóstin á þeim fullum með mjólk, svo þær fá lífshættulega eitrun í þau eftirá,  þær eru grýttar í hel af óðum múg , umskornar 6 til 10 ára gamlar, ódeyfðar að sjálfsögðu, snípurinn er skorinn burt og einnig stór hluti skapabarmanna og sköpin síðan saumuð kyrfilega saman,  sem eiginmaðurinn á svo að skera sundur og opna á brúðkaupsnóttina, en þessi meðferð er eingöngu gerð með það í huga að konan geti ekki notið ásta og verði því manni sínum trú, margar stúlkur deyja í kjölfar aðgerðarinnar úr blóðeitrun, þeim er haldið í gíslingu inni á heimilum sínum þar sem  farið er með þær sem vinnuþræla í eigin húsum , þær fá ekki nein yfirráð yfir börnum sínum, eru reknar allslausar út af heimilinu  ef kallinn ákveður að skilja við þær, niðurlægðar andlega á allan annan hátt t.d. með því að þær fá engin ráð yfir fjármálum heimilisins, fylgst er með ferðum þeirra, ef þær þá fá leyfi til þess að fara út á annað borð, þær fá ekki að velja sér sína eigin vini,  er meinað að ganga í skóla,  þær eru skyldaðar til þess að hylja hár sitt, andlit og allan líkama sinn  fyrir öðrum en eiginmanninum, innrætt að þær séu heimskar,  ljótar, feitar eða of gamlar

og í mörgum tilfellum einfaldlega myrtar til þess að 'verja heiður fjölskyldunnar'???


Og það liggur við  að ég haldi því fram að það sé skásti kosturinn fyrir sumar konur. Þá losna þær alla vega frá þessu djöfla svínsrembu ægivaldi sem feðraveldið er og hefur verið um aldir alda. Og heimurinn horfir á og gerir ekki neitt.  Einfaldlega af því að heiminum er stjórnað af körlum.


mbl.is Myrti systur sína undir yfirskyni „sæmdarmorðs"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Guðný,

Já þetta eru samfélagseinkenni og hátterni sem Feminista flokkurinn Vinstri Grænir leggja blessun sína yfir þegar þeir lýsa yfir stuðningi við Íslömsk samtök á borð við Hamas og Hizbollah og málstað þeirra. Þessi samtök líta einmitt á konur sem verur sem umgangast skuli af virðingu skör lægra en úlvalda.

Vöndum vina valið! 

kv,

Umhugsun.

Umhugsun (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 14:02

2 identicon

Sem betur fer erum við ekki allir svona viðurstyggilegir.

Ég myndi aldrei hugsa mér að koma svona fram við konur.

Heima hjá mér elda ég jafnt á við unnustu mína.

Ég strauja mínar eigin skyrtur.

Ég fer alltaf út með hundinn 5-6 sinnum á dag (hann er með litla þvagblöðru).

Ég færi henni blóm 1-2 í viku.

Ég hjálpa henni með námið þegar hún þarf þess.

Þetta er bara daglegt og eðlilegt  líf fyrir mér.

Ég er ekki að leitast eftir hrósi eða klappi    ég er bara að reyna að sýna fram á það að við erum ekki allri skrímsli og skeppnur.

Bjössi (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 16:14

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég er ekki í Vinstri Grænum þú þarna sem felur þig bak við dulnefnið, Umhugsun.
Aftur á móti er ekkert athugavert við femínísmann.
Í sinni tærustu mynd stendur femínisminn fyrir sömu mannréttindum fyrir  konur jafnt sem karla. Enda  ekki vanþörf á því. Eða finnst þér það ekki?

Sæll Bjössi. Sem betur fer eru ekki 'allir karlmenn svona viðurstyggilegir' eins og þú orðar það.
þú ert greinilega fyrirmyndar sambýlismaður og kemur vel fram við kærustuna þína eins og sjálfsagt er.
En því miður er heimurinn enn í höndum gamla karlaveldisins og meðan svo er eiga konur undir högg að sækja í mörgum samfélögum og þá á ég jafnt við vestræn sem austræn ríki. 

Svava frá Strandbergi , 6.4.2009 kl. 17:29

4 Smámynd: www.zordis.com

Sem betur fer er heimurinn ekki allur eins og það er til ljúft fólk sem vill vel og kemur vel fram. Því miður þá eru menningarbrot annara óskiljanlegt okkur hinum sem höfum barist fyrir jafnrétti kynja.

Það er ekkert eðliegra en jafnrétti allra vera á jörðinni og eigum við langt í land með að finna því horf.

Kærleikskveðja til þín Guðný mín inn í páskahátíðina!

www.zordis.com, 8.4.2009 kl. 18:30

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Kæra Zordís. Satt segir þú að heimurinn er ekki allur eins og auðvitað er hann  líka fullur af fjölmörgu ljúfu fólki eins og til dæmis þér.
En það er blóðugt hvernig öfgatrúar múslimar koma fram við þær mannverur  sem til kvenkyns teljast eins og t.d. segir frá í fréttinni sem varð tilefnið að þessum skrifum mínum .
Ég sé bókstaflega alltaf rautt þegar ég les um svona djöfullega meðerð sumra þessara 'sanntrúuðu' Allah dýrkenda, á konum.

Kærleikur til þín Zordís mín og þinnar indælu fjölskyldu um þessa páskahátíð.

Svava frá Strandbergi , 8.4.2009 kl. 23:42

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæra Guðný, níðngsskapur er sorglegur en ég tek líka undir bjartsýn orð Zordísar.

Sigurður Þórðarson, 18.4.2009 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband