Leita í fréttum mbl.is

Lag við ljóðið mitt 'Í sjöunda himni´.

Ég er þrumu ánægð með það að nú er búið að gera, að því er ég best veit alls fimm lög við  jafn mörg  ljóða minna..
Sesselja Guðmundsdóttir tónmenntakennari gerði nýjasta lagið og er það við eftirfarandi ljóð, sem hún hefur æft með kvenna og barnaröddum.
Hún ætlar að senda mér lagið bráðum eða svona fljótlega eftir að það fer að snjóa almennilega. Kannski fyrir jól, það er aldrei að vita? Ég hlakka til að heyra lagið! Kannski maður verði bara ódauðlegur eftir allt saman. Smile

 

                             Í sjöunda himni

                               HaloSmá engill með eplakinnar
                           þyrlar upp snjóskýjunum
                           í sjöunda himni.                    
                           Ærslast við lítinn hvolp
                           og hundslappadrífan      
Halo
                           fellur til jarðar.

                           Börnin gera engla í snjóinn. Halo

                                                               


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú ert auðvitað ódauðleg - og löngu orðin það í þessum veraldlega skilningi ... Til hamingju með þetta, nafna mín.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 1.12.2008 kl. 23:19

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk nafna mín, en erum við annars ekki öll ódauðleg? Það er að segja ef við trúum á líf eftir dauðann.

Svava frá Strandbergi , 1.12.2008 kl. 23:36

3 Smámynd: www.zordis.com

Til hamingju með ljóðið þitt, alveg meiriháttar hjá þér!

www.zordis.com, 2.12.2008 kl. 22:20

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir það Zordís. Ég hlakka til að fá að heyra lagið eins og Sesselja lofaði mér einhvern tímann á næstunni.

Svava frá Strandbergi , 2.12.2008 kl. 23:29

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með ljóði þitt sem er frábært.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.12.2008 kl. 10:15

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir það Katla mín.

Svava frá Strandbergi , 3.12.2008 kl. 10:44

7 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Til lukku, þetta hlýtur að vera meiriháttar góð tilfinning og yndislegt ljóð.

Ragnhildur Jónsdóttir, 3.12.2008 kl. 11:38

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir Ragnhildur mín. Ég man þegar þetta ljóð varð til fyrir nokkrum árum, að þá var ég að horfa út um svalagluggann á lítinn strák, 'með eplakinnar' að leika sér af barnslegri gleði, í drifhvítri mjöllinni, rétt fyrir jólin. Mér fannst hann  eins og litill engill.

Svava frá Strandbergi , 3.12.2008 kl. 22:20

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mér finnst votta fyrir Taoisma í þessu ljóði. (um óræðna fjarlægð en samt samhengi)

Sigurður Þórðarson, 6.12.2008 kl. 08:17

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það er ekki ónýtt að þú sjáir votta fyrir Tao isma í þessu ljóði mínu Sigurður. Ég elska Tao isma. Brekkukots annáll er fullur af Tao isma enda er það yndisleg bók.

Svava frá Strandbergi , 6.12.2008 kl. 18:08

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Kærleiksknús frá Lejre

s

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 19:42

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir það Ægir.

Svava frá Strandbergi , 7.12.2008 kl. 22:25

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Kærleiksknús til þín Steina.

Svava frá Strandbergi , 7.12.2008 kl. 22:25

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðileg jól þil þín Elsku Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.12.2008 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband