Leita í fréttum mbl.is

Ætli Ísland verði ekki innlimað í breska heimsveldið??

Það er það sem Bretar voru víst eitt sinn að pæla í en þótti ekki taka því þar sem þeir réðu alltaf öllu sem þeir vildu ráða hér á Íslandi. En þeir tímdu víst ekki að koma upp vörnum fyrir landið, höfðu það alltaf í hendi sér að koma öllu sínu fram hér á landi svo ekki þótti taka því að eyða peningum í varnir fyrir þetta sker hér úti í Norðurhöfum.

Þeir hafa alltaf vaðið yfir okkur eins og skít, mokað hér upp fiski í aldaraðir. Enda réðust þeir á okkur með hervaldi í þrígang þegar við færðum út landhelgina.
Þetta hef ég upp úr viðtali á RUV í kvöld. Annars hafa  Íslendingar alltaf vitað að Bretar hafa ætíð rennt mjög hýru auga til gnægta fiskimiðanna okkar og nú ætla þeir líkast til að grípa tækifærið. Bloddy Hell!!

En fyrr skal ég dauð liggja en að beygja kné mín fyrir djö....  enska aðals og kóngapakkinu.


mbl.is Ísland stendur frammi fyrir gjaldþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

KærleiksLjós frá Steinu í Lejre

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.11.2008 kl. 16:30

2 Smámynd: www.zordis.com

Úfff ... hrottalegar adfarir á litla zjód. Knús á zig G.Svava!

www.zordis.com, 13.11.2008 kl. 18:22

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Veistu ég hef hugsað þetta undanfarið og sérstaklega þegar Ingibjörg lét þeim eftir að ráða því hvort þeir kæmu hingað á herflugvélunum sínum...það er eitthvað mjög skrítið í gangi. Undirlægjuhátturinn hefur verið algjör..eru ráðamenn kannski bara búnir að missa sjálfstæðið okkar í hendur breta?

Gvöð hvað ég vona að ég hafi innilega rangt fyrir mér.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.11.2008 kl. 14:39

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ekki man ég þessa sögu til hlítar en mman að þeir drápu 3 Íslendinga í Dýrafirði sem fylgdu Hannesi Hafstein sýslumanni við löggæslustörf og einn skipverji á Ægi lésti eftir árekstur við breskt herskip  70 árum síðar.

Allt stríðið sigledu Íslendingar með fisk til Englands. Þeir settu löndunarbann á  Íslendinga árið 1952, sem olli mikilli kreppu en Sovétríkin komu okkur úr þeirri klípu.  Við áttum í 12sm deilu við þá 1958, 50sm  árið 1972, og 200sm  1975.

En fyrr á öldinni voru tvívegis  þorskastríð  vegna 3gja og síðan  4. sm. Þá sýndu Íslendingar mikla hetulund og fórnuðu jafnvel lífi sínu. Verður það nú hlutskipti Geirs og Sollu að afhenda Bretum þetta allt? Til hvers var þá barist?

Sigurður Þórðarson, 15.11.2008 kl. 00:13

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nú er komið fram að Bretar munu ekki verja lofthelgi Íslands. sem betur fer. Já Bretar eiga sér blóðuga sögu í sínum fyrrverandi nýlendum og víðar.
Þeir eiga erfitt með að gleyma þvi að þeir voru eitt sinn heimsveldi.
Annars er ég ekki að dæma heila þjóð. Bretar eru flestir ágætis fólk.
James Bond (Daniel Craig) sem ég horfði á í Casino Royale í gærkvöldi hvatti t.d. til dæmis landa sína til að slíðra sverðin gegn Íslandi.
Mikið rosalega er maðurin rosalega, rosalega mikið, Vá!!!! maður!!!! (Segi ekki meir.)

Svava frá Strandbergi , 15.11.2008 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband