Leita í fréttum mbl.is

Manni vöknar nú bara um augu

Enn og aftur hafa Færeyingar sýnt vinarhug sinn í verki gagnvart okkur Íslendingum. Við þurfum svo sannarlega að styrkja bræðraböndin við þessa þjóð sem er svo náskyld og nátengd okkur.  Og sýna þeim samstöðu ef þeir einhvern tíma í  framtíðinni ákveða að losa sig við Dani sem sína 'herraþjóð'. 

 ;Færeyingar hæðast heldur ekki að okkur með því að standa fyrir söfnunarátaki með sparibauka í hendi , merktum rækilega með íslenska fánanum og sjá til þess  að slík uppákoma rati á veraldarvefinn.
Það er fyrir neðan þeirra virðingu að standa fyrir slíkum trúðslátum.

.Annars verð ég einnig að segja það svona í framhjáhlaupi, að mér finnst það stórundarlegt að á okkar tímum skuli Danir ennþá vera með nýlendustefnu í gangi gagnvart Færeyingum og Grænlendingum, þegar allar aðrar þjóðir hafa fyrir löngu séð sóma sinn í  því að  gefa slíka 'einokunaráráttu'' upp á bátinn.

Allir  vita jú að nýlendustefnan hefur alltaf gengið út á það að hafa eitthvað upp úr þeim þjóðum sem fyrir henni verða. Og  eftir nokkru er að slægjast, því Færeyingar og Grænlendingar eiga kannski olíu, ekki satt?


mbl.is Vinarkveðja frá Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Rétt Guðný, Færeyingar eru elsulegt og hjartahlýtt fólk.

Sigurður Þórðarson, 11.10.2008 kl. 12:55

2 identicon

Veistu að alltaf þegar minnst er á Færeyjar fæ ég hroll.  Helgislepjan og trúarofstækið er með endemum og þá er ég að tala um  nornaveiðar þeirra gagnvart samkynhneygðu fólki.  Gef lítið fyrir frændsemi við það fólk.  Allavega ekki fyrr en það þroskast aðeins hvað umburðarlyndi snertir. En get vel tekið undir með þér hvað varðar stefnu Dansksins.

Simbi Sæfari (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 12:58

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Færeyingar eru eitthvað með seinni skipunum til að viðurkenna samkynhneigð satt er það. Enda lítil eyþjóð sem heldur fast í gamla siði. Eru í dag ekki svo ólíkir okkur  Íslendingum fyrir örfáum áratugum að þessu leyti. Þegar Hörður Torfason hrökklaðist úr landi vegna ofstækis í hans garð frá samlöndum sínum  vegna kynhneigðar sinnar. En batnandi mönnum er best að lifa og ég trúi því að Færeyingar átti sig eins og við gerðum, eftir einhverja áratugi.

Svava frá Strandbergi , 11.10.2008 kl. 13:23

4 Smámynd: www.zordis.com

Allur stuðningur er vel þeginn og ég kann afskaplega vel við fólkið sem í Færeyjum býr! 

Finnst hins vegar leitt hvernig þeir taka á málum samkynhneigðra en það er varla öll þjóðin heldur það brot sem sker sig úr!

Áfram Færeyjar, Ísland og samkynhneigðir!!!

www.zordis.com, 11.10.2008 kl. 14:11

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég hef ákveðið að afneita dönskum genum mínum.

Ég elska Færeyinga og Færeyjar. 

Góðar nöfnukveðjur til þín!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.10.2008 kl. 01:14

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Áfram Ísland og Færeyjar!!!! Og  bara allir!! sSma  hvort þeir eru gagnkynhneigðir, samkynhneigðir eða beggja blands.

Ég elska líka Færeyjar nafna, þó ég hafi aldrei komið þar. En það er mín heitasta ósk að komast að minnsta kosti til Torshavn og ganga um þröngar göturnar í gamla bænum með öllum krúttlegu húsunum með torfþökunum. Svo er ég líka Vestmannaeyingur og Færeyjar minna mig einhvern veginn svo á Eyjar. Ég er víst komin af langmæðratali,  af Den danske helt, det vil sige Daniel Rantzauw, en nú vil ég nú helst gleyma því í bili. 

Svava frá Strandbergi , 12.10.2008 kl. 03:36

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hef alltaf elskað Færeyinga og enn meira núna! Ég fékk tár í augun þegar ég las þetta, áttaði mig á því hvað ég hef tekið nærri mér þessar árásir á Ísland undanfarið.

Guðríður Haraldsdóttir, 19.10.2008 kl. 19:26

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Við höfum þá grátið í kór þegar við lásum þetta Gurrí. Færeyjar þetta litla land er eina þjóðin í öllum heiminum sem sýnir okkur Íslendingum samstöðu og samúð.

Svava frá Strandbergi , 20.10.2008 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband