Leita í fréttum mbl.is

Huggun

Þú kemur til mín
ósköp hægt og hljótt
er húmið dökka
sest, um sefa minn.
Í hjarta mér
þá helköld ríkir nótt
en heit mín tár
sem falla´ á fölva kinn.
Þá lýsa mér
þín augu blíð og blá.
Svo björt og hrein
þar skín mér, ástin þín.
Sem glæðir aftur
gleymda von og þrá.
Þú göfga litla
hjartans, kisan mín.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

ÆÆÆ hvad madur er eithvad vidkvæmur í dag ...Fæ bara tár í augun.Yndislegt ljód.

KV frá danaveldi.

Gudrún Hauksdótttir, 19.8.2008 kl. 09:37

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir kveðjuna þína frá hinni yndislegu Danmörku. Var einmitt í sumarbústað í Gilleleje á  Sjálandi í lok maí sl. í 24 stiga hita.
Heimsótti að sjálfsögðu Kaupannahöfn og svo marga fallega litla bæi þar í kring.

Svava frá Strandbergi , 19.8.2008 kl. 16:39

3 Smámynd: www.zordis.com

Ástaróður blíður!

Mjög fallegt. 

www.zordis.com, 19.8.2008 kl. 17:59

4 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Flott ljóð hjá þér.Það er alltaf gaman að koma til Danmerkur ætla að fara í jólamat í Tívolí í nóvember.

Guðjón H Finnbogason, 19.8.2008 kl. 20:10

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali setur nú bara upp kryppu!

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.8.2008 kl. 01:53

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, 'kryppuna'!!  Maður hefur nú svo sem  séð hana áður Svo er gengið út að hlið l, eða réttara sagt hoppað út á hlið þegar maður er með kryppu.

Svava frá Strandbergi , 21.8.2008 kl. 08:30

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mjög fallegt ljóð Guðný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.8.2008 kl. 13:33

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

æjji en yndislegt  !

ást inn í dýraríkið er svo fallegt !

kærleikur til þín kæra guðný

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 15:44

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús til ykkar allra.

Svava frá Strandbergi , 22.8.2008 kl. 02:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband