Leita í fréttum mbl.is

Freyja

 

 

 

Freyja er gyðja ástar og frjósemis í norrænni goðafræði. Nafn hennar merkir „frú“. Freyja er af ætt vana en bjó ásamt bróður sínum Frey og föður sínum Nirði í Ásgarði en þangað voru þau send sem gíslar og vináttuvottur eftir stríð þessara tveggja ætta goða.

Freyja var valdamikið gyðja og mikið dýrkuð af konum en einnig af konungum og hetjum. Hún jók frjósemd lands og sjávar og veitti hjálp í hjónabandi og við fæðingar.
Verandi ástargyðja er hún sögð hafa átt marga ástmenn bæði goð og konunga sem hún studdi svo í valdatíð þeirra.

Fjölskylduhagir og heimili Freyja er systir frjósemisguðsins Freys og dóttir sjávarguðsins Njarðar. Bóndi hennar er nefndur Óttar eða Óður. Hann þurfti oft að fara í langferðir og þegar hann var í burtu grét hún tárum úr skíragulli af söknuði.
Dætur þeirra eru Hnoss og Gersemi. Bær Freyju heitir Fólkvangur þar sem salurinn Sessrúmnir er en hann er bæði rúmgóður og lofthreinn. Þangað eru allir velkomnir. [breyta] Dýrgripir Freyju Freyja ferðaðist í vagni sem tveir kettir drógu.

Hún átti einnig valsham sem var þeim eiginleikum búinn að er hún klæddist honum breyttist hún í fugl og gat flogið hvert sem hún vildi. Þessi valshamur kemur mikið fyrir í goðsögunum og oft vegna þess að Loki stelst til að nota hann.

Freyja hafði miklar mætur á dýrum djásnum og átti hálsmen nokkuð sem var kallað Brísingamen kallað eftir dvergaætt þeirri, Brísingum, sem það höfðu smíðað. Freyja sá dýrgripinn hjá dvergunum og fékk mikla ágirnd á því. Þeir sögu að hún mætti fá það ef hún eyddi einni nótt með hverjum þeirra og hún samþykti það.

Þegar Óðinn frétti af þessu sem skipaði hann Loka að ræna meninu af Freyju. Loki breytti sér þá fló meðan Freyja svaf og beit hana í kinnina svo að hún velti sér á magann. Þá gat hann opnað lásinn og tekið menið. Þegar Freyja uppgvötaði að menið var horfið grunaði hana að Óðinn hefði tekið það og heimtaði að hann skilaði því.
Óðinn gerði það en fyrst þurfti Freyja að koma af stað vígum milli tveggja konunga, en víg þessi þróuðust yfir í eina af helstu hetjusögnum víkingatímans.

[breyta] Heimildir * Cottrell, Arthur. 1997. Norse Mythology. Ultimate Editions, London. * Brian Branston. Goð og garpar úr norrænum sögnum. 1979. Bókaforlagið Saga, Reykjavík . * Roy Willis. Goðsagnir heimsins. 1998. Mál og menning, Reykjavík.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mig langar að bæta við þetta að verslannir Nóatúns heita eftir Nóatúni, sem er heimili Skaða og Njarðar foreldra Fryju og Freys.  Njörður er Ás sjófarenda, einkum þeirra er stunda verslun. Vegna lauslætis er erfitt að henda reiður     

á ætt Freyju en hún er af ætt Ása í föðurætt og jötna í móðurætt en var sjáf

stundum kölluð Vanadís. Þau systkinin Freyr og Freyja hafa að einhverju 

leyti verkaskiptingu. Freyr helgað sig mjög frjósemi jarðar og því þykir gott

fyrir bændur að blóta hann. Freyr stofnaði til jóla (mjög falleg jólasaga)

með því að kvænast Gerði Gymnisdóttur, jötunmær. Þau elskuðust í 9 daga 

og níu nætur og upp frá því hækkaði sólin á ný (Skírnismál) 

Sigurður Þórðarson, 12.7.2008 kl. 08:37

2 Smámynd: www.zordis.com

Gaman að lesa, ævintýri að mínu skapi!

www.zordis.com, 12.7.2008 kl. 09:03

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir þetta, Sigurður. Alltaf gaman að goðafræðinni. Já, vanadís, já, stundum eru konur einmitt kallaðar, fagra vanadís.

Já, Zordis, kannski er norræn goðafræði einmitt nokkurs konar ævintýri. 

Svava frá Strandbergi , 12.7.2008 kl. 13:44

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir þennan fróðleik, töff mynd.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.7.2008 kl. 13:46

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ekkert að þakka ég hef alltaf gaman að þessu, enda einn af stofnendum

Ásatrúarfélagsins. Mest held ég þó upp á jólahelgileikinn Skírnismál  og

og sakna þess að þetta skuli ekki vera kennt í skólum. Sammála þér

Ásdís um myndina henna Guðnýjar, hún er frábær listamaður. 

Sigurður Þórðarson, 12.7.2008 kl. 14:32

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka ykkur fyrir, Ásdís og Sigurður.

Sigurður, mig langar mikið til þess að fræðast meira um Ásatrúna, t.d.um jólahelgileikinn sem þú nefnir og fleira. Getur þú bent mér á hvert ég á að leita?

Svava frá Strandbergi , 12.7.2008 kl. 16:51

7 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Svo er líka til Freyjudraumur! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 12.7.2008 kl. 17:11

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Akkúrat, Siggi. Mér finnst hann ekki góður, enda er ég ekki karlmaður.

Svava frá Strandbergi , 12.7.2008 kl. 17:32

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Guðný, helsta heimildina um jólahelgileikinn er að finna í Skírnismálum  

sem eru í Eddukvæðum.  Ásatrúarfélagið setti þessa leika upp á hverjum 

jólum meðan Sveinbjörn var á lífi og nokkru eftir hans daga. Flottasta uppfærslan var í Ráðhúsinu fyrir u.þ.b 12 árum undir stjórn Ingunnar Ásdísardóttur. Sagan gengur út að Ásarnir réðu fyrir sólu og ljósi en jötnarnir      réðu fyrir vetri og myrkri. Sólin var gengin svo langt niður og var ekki beinlínis á leið upp. Til forna voru meiriháttar deilur leystar með giftingum.  Sólguðinn myndarlegi, Freyr   Njarðarson var á lausu og það var líka hin fagra jötunmær Gerður Gymnisdóttir. Skírnir var sem sagt gerður út af örkinni til        biðja hennar  fyrir hönd Freys.  Þetta var hin mesta svaðilför en allt fór vel að lokum. Hjónin elskuðust í 9 daga og 9 nætur og upp frá því fór sól hækkandi  og það voru kölluð jól.   En nú vil ég ekki taka frá þér ánægjuna við lesturinn.         

Sigurður Þórðarson, 12.7.2008 kl. 18:58

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.7.2008 kl. 22:05

11 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

æði

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 12.7.2008 kl. 23:59

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sigurður! Ég á Eddukvæði, en hef ekki lesið þau öll. Hef samt lesið, Hávamál, Þrymskviðu og fleira, en Skírnismál hafa alveg farið fram hjá mér. Ég mun örugglega lesa þau.

Ég hef mikinn áhuga á orðsifjafræði og held að ég fari með rétt mál, varðandi það að orðið jól sé e.t.v.skylt enska orðinu 'jolly', sjá  einnig, ne, orðið Yule.
Í íslensku orðsifjabókinni eru m.a. , meðal umdeildra og óvissra tilgáta um uppruna orðsins, leiddar líkur að því, að  'jól' sé hljóðfirringarmynd af ie orðinu ´k'´ ek'´lo',  'hjól' og upphafleg merking, vetrarsólhvörf, árshringur.

En meira um Freyju:

Í Sólarljóðum er að finna  eftirfarandi erindi:

Óðins kvon
rær á jarðar skipi
móðug á munað
seglum hennar
verður síð hlaðið
þeim er á þráreipum þruma.

En í sumum ritum frá síðmiðöldum, t.d. í Skíðarímu er Freyja talin kona kona Óðins, en ekki, samkvæmt öllum fornum heimildum, Frigg.

.  

Svava frá Strandbergi , 13.7.2008 kl. 01:14

13 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Guðný ég er nú farin að ryðga í þessu en það er örugglega rétt að  Freyja er kona Óðs og Óðinn er kvæntur Frigg. Hitt er annað að það fóru sögur af kvennasemi Óðins og að Freyja hafi ekki verið við eina fjöl felld frekar en faðir hennar. Flest kvæðin eru örugglega miklu eldri en landnám en Sólarljóðin eru þar undantekning. Ég er alveg viss um skyldleika jolly og yule við jól. Mér finnst hjól og jól langsóttara út frá orðsifjafræði. En hvort sem það er tilviljun eða ekki þá er er greinileg hugmyndafræðileg tenging í jólum og miðsumars blóti, sem jafnframt var þingsetningadagur alþingis við Öxará, annars vegar og veraldarhjólinu sem skýrt kemur fram í Völuspá.  Mikið hefur verið gert úr því að jólin hafi verið frjósemishátíð sbr Jörvagleði sungnir mansöngvar (daðrað) o.s.f. enda voru jólin brúðkaupshátíð frjósemisgoðsins. Miklu fleira bendir þó til þess að jólin fyrir kristnitöku hafi verið ærið lík því sem við þekkum í dag, nema að hátíðin var miklu stærri. Þannig mátti hvorki spara mat né öl við þurfamenn yfir jólin að viðlagðri refsingu.

Sigurður Þórðarson, 13.7.2008 kl. 01:57

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir, Sigurður.

Svava frá Strandbergi , 13.7.2008 kl. 02:06

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir síðast Anna, ef ég man rétt sigldum við saman á Lagarfossi árið 1974 til Múrmansk og fórum í land og litum í kring um okkur.

 Varðandi nafn verslunarinnar Nóatún:

Þetta er alls ekki eins langsótt og þig grunar. Stofnandi Nóatúns Jón Júlíusson upplýsti um þetta mál í stóru helgarviðtali ein dagblaðanna.  Hann sagðist "sérstaklega vilja leiðrétta þann útbreidda misskilning að nafn búðarinnar væri dregið af götuheitinu".   Nafnið sé tilkomið vegna þess að Nóatún sé heimili Njarðar, sem sé Ás kaupmennsku og siglinga. Hann hafi sjálfur verið til sjós og nú sé hann kaupmaður og hafi því fundist við hæfi að tileinka Nirði þetta nafn með þessum hætti.  Sjálfur vissi ég ekki um Þrótt en tek orð Jóns trúanleg. 

Sigurður Þórðarson, 13.7.2008 kl. 12:43

16 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Fróðlegt og skemmtilegt Guðný

Ragnhildur Jónsdóttir, 14.7.2008 kl. 10:51

17 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir innlitin öllsömun. Ég hef verið ansi löt við að fara blogghringinnn undanfarið.  Hef verið upptekin við annað. En nú ætla ég að fara að bæta úr því.

Svava frá Strandbergi , 14.7.2008 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband