Leita í fréttum mbl.is

´Imagine' Nokkur orð um páfaklúðrið.

Það er ekkert undarlegt að Múslimar skyldu hafa vera reiðir páfa vegna ummæla hans um Islam enda þótt reiði þeirra virðist eitthvað vera að sjatna.

Enda ber það vott um ótrúlegan hroka að ætla sín eigin trúarbrögð fremri öðrum æðri trúarbrögðum. Því kjarni þeirra allra er hinn sami.

Eða eins og vís maður eða kona sagði eitt sinn. Ef þú ætlar upp á tind fjallsins skiptir ekki máli hvort þú leggur á fjallið úr norðri, suðri, austri eða vestri. Allar leiðirnar liggja upp á tindinn.

Og það að páfi skula vitna í 15. aldar texta sýnir einnig í hnotskurn stöðnum og stöðu hinnar katólsku kirkju í heiminum í dag. Í þessum 15. aldar texta segir eitthvað á þá leið að ekkert nema illt hafi komið frá trúarbrögðum Islams.

En hvernig væri fyrir Kristna menn að líta aðeins í eigin barm? Kristin trú hefur verið boðuð með eldi og brennisteini allt síðan á dögum krossfaranna. Þeir notuðu svo sannarlega sverðið í þágu Kristinnar trúar ekki síður en fylgjendur Múhammeðs spámanns nota sín sverð í þágu sinnar trúar.

Og hvernig var það ekki með Inkanna sem voru brytjaðir niður og menning þeirra eyðilögð til þess að komast yfir Inkagullið? Inkarnir voru réttdræpir í augum Kristinna manna þar sem Inkarnir voru aðeins heiðingjar og þess vegna einskis virði, en gullið þeirra var eftirsóknarvert.

Við skulum ekki heldur gleyma spánska rannsóknarréttinum sem pyntaði 'trúvillinga' allt til dauða á hryllilegasta hátt. Né heldur hvernig kirkjan níddist á konum öldum saman.

Eða er einhver búin að gleyma nornabrennunum?

Konur voru jafnvel brenndar á báli fyrir það eitt að kunna að lesa, hvað þá meir.

Og ekki hefur skírlífi katólskra presta haft neitt gott í för með sér svo vitað sé.

Heldur jafnvel þvert á móti, því það vita allir sem fylgjast með heimsmálunum að óteljandi katólskir prestar og biskupar hafa níðst á börnum úti í hinum stóra heimi.

Enda virðist vera ákveðin kvenfyrirlitning í þeirri stefnu að prestar megi ekki konu kenna.

Það er eins og konan sé einhver óhrein vera, svo mikið óæðri körlum að þeir saurgist af nánum

kynnum við þær.

Og enn berast Kristnir menn á banaspjótum og er þar nærtækasta dæmið trúarbragðastríðið á Írlandi. Þar berjast hatramlega tveir hópar innan sömu trúar sem eiga það sameiginlegt að trúa á Jesúm Krist sem boðaði frið á jörð.

Já það er satt sem segir í texta Bubba Morthens 

                                          'Það fossar blóð í Frelsarans slóð' 

 

Mannkynið hefur alrei borið gæfu til þess að fylgja neinum trúarbrögðum svo vel fari. Þau hafa verið afskræmd og leidd á villigötur af mönnunum sjálfum.

Þess vegna væri affarasælast fyrir mannkynið að leggja niður öll trúarbrögð þar til mennirnir komast á það þroskastig að geta meðtekið og fylgt í einu og öllu innsta kjarna þeirra.

Eða hvað söng ekki John Lennon í sínu ódauðlega lagi?

Og hvenig væri að pæla svolítið í því sem hann segir þar?

Imagine

Imagine there's no countries

It isn't hard to do

Nothing to kill or die for

And no religion too

Imagine all the people

Living life in peace...

You may say I'm a dreamer

But I'm not the only one

I hope someday you'll join us

And the world will be as one

Imagine no possessions

I wonder if you can

No need for greed or hunger

A brotherhood of man

Imagine all the people

Sharing all the world...

You may say I'm a dreamer

But I'm not the only one

I hope someday you'll join us

And the world will be as one


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er sorglegt að Guðný Svava, sem er eitt albezta Lesbókarskáld Morgunblaðsins að mínu mati, skuli ekki vera betur upplýst um þau málefni sem hún fjallar hér um. Ég gef mér ekki tíma hér og nú til neinna ýtarlegra leiðréttinga, en vísa í bili til athugasemda minna tveggja við NFS-fréttina Benedikt páfi leitar sátta í dag, 22/9. Þar fjalla ég um missagnir þess fjölmiðils og margra annarra (m.a. Blaðsins og Mbl.) um hin raunverulegu ummæli Manúels II Paleologus, keisara í Miklagarði, um hálfri öld áður en múslimir þurrkuðu ríki hans út, og vitna orðrétt í tilvitnun páfans í hann, auk þess sem ég fjallar þar nánar um það, í hvaða merkingu viðurkenna megi ummæli keisarans sem viðeigandi og í hvaða merkingu líta megi á þau sem ósönn, því að múslimir hafa flutt sumum þjóðum góða hluti, en öðrum ekki.

Jón Valur Jensson, guðfræðingur og Lesbókarskáld!

Jón Valur Jensson (IP-tala skráð) 22.9.2006 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband