Leita í fréttum mbl.is

Umhugsunarverð dæmisaga

Dag nokkurn tók mjög efnaður maður son sinn með sér í ferð út á land í þeim tilgangi að sýna honum hvernig fátækt fólk býr.
Þeir dvöldu tvo daga og nætur á sveitabýli sem myndi teljast fátæklegt. Á leiðinni til baka spurði faðirinn son sinn hvernig honum hafi þótt ferðin. "Hún var frábær Pabbi."
"Sástu hvernig fátækt fólk býr?" spurði faðirinn. "Ó já," sagði sonurinn. "Jæja, segðu mér, hvað lærðir þú af þessari ferð?" spurði faðirinn.
Sonurinn svaraði: "Ég sá að við eigum bara einn hund en þau eiga fjóra. Við eigum sundlaug sem nær útí miðjan garð en þau eiga læk sem engan enda tekur.
Við erum með innflutt ljósker í garðinum en þau hafa milljón stjörnur á næturnar. Veröndin okkar nær alveg að framgarðinum en þau hafa allan sjóndeildarhringinn.
Við eigum smá blett til að búa á en þau eiga akra sem ná eins langt og augað eygir. Við höfum þjónustufólk sem þjónar okkur en þau þjóna öðrum.
Við þurfum að kaupa okkar mat en þau rækta sinn. Við erum með háa girðingu til að verja okkur en þau eru umkringd vinum sem verja þau. "
Faðir drengsins var orðlaus. Þá bætti sonurinn við: "Takk Pabbi, fyrir að sýna mér hve fátæk VIÐ erum."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þessi saga er frábær og hollt að lesa hana af og til. 

Ásdís Sigurðardóttir, 23.11.2007 kl. 20:38

2 Smámynd: www.zordis.com

ÆÐISLEGUR sannleikur ... Af aurum fæðast mannapar!

knús á þig kæra vinkona og njóttu helgarinnar!

www.zordis.com, 23.11.2007 kl. 22:27

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er sko sannleikur knús til þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 23.11.2007 kl. 22:38

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús til baka Já, margur verður af aurum api.

Svava frá Strandbergi , 24.11.2007 kl. 01:22

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Frábær saga! Mér finnst ég til dæmis óendanlega rík núna með 4 nýfædda kettlinga og svo allt hitt liðið mitt.

Velkomin í bloggvinahópinn minn Guðný. Ég hlakka til að fylgjast enn betur með frábæru skrifunum þínum

bestu kveðjur

Ragga 

Ragnhildur Jónsdóttir, 24.11.2007 kl. 17:02

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Very good

Jóna Á. Gísladóttir, 24.11.2007 kl. 23:52

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir Ragga og sömuleiðis. Ég hálfpartinn öfunda þig af kettlingunum, svona nýfæddum. En ég hef víst nóg í bili með mína tvo ketti.

Bestur kveðjur

Svava. 

Svava frá Strandbergi , 24.11.2007 kl. 23:56

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef nú alveg nóg með vandræðagepilinn hann Mala.

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.11.2007 kl. 00:05

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Bókaspjallið er komið í gang núna.

Marta B Helgadóttir, 25.11.2007 kl. 11:47

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nimbus, ég bara verð að fara heimsækja Mala og þig í leiðinni auðvitað og skoða svo öll gömlu fjölskyldualbúmin með þínu náðarsamlegasta leyfi.

Marta, ég bara get ekki lesið lengur, hef enga eirð í mér. Les ekki einu sinni blöðin. Ég hlýt að vera búin með kvótann, ég var læs 6 ára gömul og gleypti í mig allar bækur. Las t.d. Biblíuna spjaldanna á milli, sem hverja aðra skemmtisögu þegar ég var 12 ára. Nú get ég  bara ekki meir í bili, því miður  Takk fyrir að láta mig vita samt.

Ég sá á Stöð 1 í dýraþættinum Dýravinir að þar voru sýndir svo til nýfæddir kettlingar sem höfðu verið bornir út. Þeim var bjargað og farið með þá á dýralæknastofuna í Garðabæ. Það var sýnt  þegar það var verið að gefa þeim úr pela. Guð hvað mig langar í einn af þeim og hvað ég er reið út í þetta pakk sem fer svona með dýr að henda þeim bara eins og hverju öðru rusli. En Tító yrði brjálaður ef það kæmi svona smákettlingur á heimilið og Gosi líka. 

Svava frá Strandbergi , 25.11.2007 kl. 16:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband