Leita í fréttum mbl.is

Þetta finnst mér sorglegasta fréttin á mbl.is í dag

Aumingja blessuð dýrin sem geta engum vörnum við komið þegar þau eru leidd til slátrunar til þess að menn geti svo gætt sér á holdi þeirra. Flest allt það fé sem slátrað er, er ekki nema eins sumars gamalt, það eru litlu lömbin sem við elskum á vorin en étum á haustin
Það er svo mikill tvískinnungur í okkur mönnunum. Okkur finnst sjálfsagt að dekra við hunda og ketti og hafa þau dýr að vinum, en drepa og éta fé, svín og nautgripi og fleiri dýr. Samt geta þau dýr líka verið ágætis gæludýr og eiga allt eins skilið að lifa góðu lífi eins og gæludýrin okkar.
Þegar ég var níu ára dvaldi ég með fjölskyldu minni í nokkrar vikur á bóndabæ í Vestmannaeyjum, bóndabæ sem nú er kominn inn í miðjan Vestmannaeyjabæ.
Besti leikfélagi okkar systkinanna var lítil kálfur þarna á bænum. Og hann hafði gaman af því að leika sér líka við okkur krakkana. Hann rassakastaðist út um allt tún með okkur í eftirdragi, haldandi í halann á honum. Og við fengum að gefa honum að drekka úr fötu, því ekki fékk þetta litla kusubarn að drekka úr spenum móður sinnar. Þess vegna elskaði hann að sjúga puttana á okkur krökkunum með hrjúfu  tungunni sinni. Litli kálfurinn sem lék sér  svona áhyggjulaust við okkur mannanna börn var svo vafalaust drepinn og étinn um haustið. Kálfakjöt er jú svo ljúffengt finnst okkur mönnunum og fleiri kjötætum,
Ég hef heldur aldrei getið skilið það sveitafólk sem elur upp heimalninga og kynnist þeim náið sem litlum vinum sínum, en getur svo samviskulaust farið með þessa sömu heimalninga til slátrunar. Eða jafnvel hér áður fyrr slátrað heimalningnum sjálft heima við, ef gesti bar óvænt að garði sem þurfa matar með. Það hef ég reynt sjálf, því eitt sinn er við fjölskyldan komum í heimsókn á bóndabæ nokkurn, þegar ég var 12 ára gömul, var heimalningnum slátrað í matinn handa okkur gestunum.
Ég sem hafði leikið mér við þennan sama heimalning fyrr um daginn og gefið honum að drekka úr pela gat ekki borðað neitt, en laumaði kjötbitunum á disknum mínum undir borðið til hundana sem þar lágu. Þeir höfði líka leikið sér við heimalninginn, en þeim fannst allt í lagi að éta hann fyrir því.

Hvenær verður mannskepnan svo þróuð að hún hætti að drepa og éta ung börn dýranna meðbræðra okkar á jörðinni? Guð ætlaðist ekki til þess að mennirnir ætum dýrin, heldur hefðum þau sem vini okkar. Samkvæmt Biblíunni var það syndin sem maðurinn framdi sem fékk hann til þess að verða kjötæta, því við vorum í upphafi ekki sköpuð til þessarar óhæfu. 


mbl.is Tugir fjár drápust þegar flutningabíll valt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður að gera þér grein fyrir því að þessi dýr væru ekki til ef að það ætti ekki að slátra þeim og borða þau. Þessi dýr geta bara veirð þakklát fyrir þann tíma sem þau fá að lifa, þó að hann sé stuttur

Óli Jón Gunnarsson (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 17:18

2 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

þú semsagt étur bara gras og hrísgrjón, kannski kartöflur

Árni Sigurður Pétursson, 25.10.2007 kl. 17:39

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég borða nú allt kjöt, en mismikið eftir tegundum,elska dýrin en er ekki svona dugleg að hafa þau ekki á matseðlinum hjá mér.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.10.2007 kl. 17:56

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nei, Árni ég er ein af hinum syndugu og borða kjöt, en samt býður mér oft við því að borða það og finnst að ég sé að borða lík, sem kjötið er auðvitað af. ég var aðeins að vekja til umhugsunar um það hvers vegna við borðum kjöt. Ég veit annars ekki betur en að grænmetisætur lifi góðu lífi á 'grasinu'

Svava frá Strandbergi , 25.10.2007 kl. 19:37

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Grasið er líka líf.

Sigurður Þór Guðjónsson, 25.10.2007 kl. 23:47

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Nimbus, kannski við verðum bara að tileinka okkur ljóstillífun eins og það. Þér hefur löngum tekist að stinga uppí mann kæri bróðir.

Svava frá Strandbergi , 26.10.2007 kl. 00:14

7 identicon

iss... frí slátrun og svo er þetta geggjað með brúnni sósu og kartöflum, svo má gera pylsur og grilla þetta þannig að þú sérð að þetta er bara hið besta mál... jamm´og namm lambakjöt á diskinn minn!

bæ bæ

verði þér að góðu 

Gunnar (IP-tala skráð) 26.10.2007 kl. 01:03

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þú segir nokkuð Gunnar. Þú hittir einmittt naglann á hausinn,mér finnst nefnilega okey að borða svona kjöt í dulargerfi eins og pyslur, hakk og hamborgara og svoleiðis jukk. Líklega er ég bara hinn mesti hræsnari eftir allat saman.

Svava frá Strandbergi , 26.10.2007 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband