Leita í fréttum mbl.is

Ég sá hann í dag ' Vitfirrt ást'

Ef þú kæmir til mín

myndi ég ráðast á þig

og rífa utan af þér fötin.

Svo myndi ég leggja þig flatan

á fínpússsað eldhúsgófið

og fleka þig með bestu lyst.

 

Það er nú það,  ljúft er að láta sig dreyma. Það verður víst hvort sem er aldrei neitt meira úr þessu.
En það getur líka verið ágætt að vera ástfangin í leyni.

En hvað með það,  ég er loksins búin að fá vinnu. Eiginlega samskonar vinnu og ég vann á síðasta vinnustað,, þ.e. að kenna myndlist, nema í staðin fyrir að kenna fólki í framhaldsskóla, mun ég nú fara að kenna leikskólabörnum.
Ég fer niður á við í aldri nemenda minna, úr fullorðnu fólki og niður í smábörn. Ætli það endi ekki bara með því að ég fari bara að taka á móti börnum og gerist ljósmóðir? 

Ég fór í bankann minn í dag og sótti um styrk til að halda einkasýningu. Ætla að reyna að halda smásýningu á undan samsýningunni okkar bloggvinkvennanna sex í Ráðhúsinu eftir ár, ef allt gengur að óskum. Til vara sótti ég reyndar um yfirdráttarlán líka. Ég sagði þjónustufulltrúanum að mig vantaði líka pening til þess að gefa út ljóðabók sem ég ætla að myndskreyta sjálf, en við urðum ásáttar um að taka bara eitt fyrir í einu.

Nú er Tító kominn á lyf við ógleðinni sem hrjáir hann vegna þess að þvagefnið í blóðinu hefur aukist. Nýrun hans eru að bila smátt og smátt. Lyfin verka vel á hann, allavega er hann hættur að kasta upp út um öll gólf,  en ég held að þessi lyf hafi slævandi verkun því hann er alltaf dormandi. Svo er hann eiginlega alveg hættur að borða. Ég man ekki til að hafa séð hann borða í marga daga.

Gosi graðnagli finnur og sér hve Tító er orðinn lítill bógur og leggur hann í einelti. Hann varnar honum þess að komast á kattaklósettið sem er úti á yfirbyggðu svölunum. Ég vaknaði einn morguninn við ofboðsleg hræðsluvein í Tító og rauk fram, þá sat hann skíthræddur við svaladyrnar og þorði ekki út, því Gosi réðist á hann ef hann dirfðist svo mikið að reyna að stíga fæti út á svalirnar. Svo ég neyddist til þess að láta kattaklósettið  inná  bað.

Tító sem hingað til hefur verið kóngurinn á heimilinu og hátt yfir Gosa hafinn í goggunarröðinni er nú undir hælnum á Gosa graða. Náttúran er grimm, því ef að dýr finna að eitthvert annað dýr er orðið mikið veikt leggjast þau á það. Þó hefur Gosi verið góður vinur Títós í gegnum árin.

Þegar Tító er ekki sofandi þá eltir hann mig vælandi um allt og vill láta halda á sér og bera sig um. Ég hef smá áhyggjur af því þegar ég fer að vinna að skilja Tító og Gosa eftir eina heima þegar ástandið er orðið svona .

Ég vona bara að allt muni koma til  með að ganga vel hjá mér í nýju vinnunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til lukku með nýju vinnuna. Ég er viss um að hún á eftir að gefa þér mikið. Mér finnst rosalega gaman að skoða myndlist barna. Gaman væri að fara á sýningu hjá þér, ertu búin með þau verk sem þú ætlar að sýna eða ertu að bæta við?? Knús í krús og faðmlag til Tító

Ásdís Sigurðardóttir, 30.8.2007 kl. 23:26

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Ásdís. Ég er að bæta við myndum. Vona að ég geti haldið sýninguna eftir hálft ár. Já, ég held bara að það verði gaman að kenna börnunum.Skila knúsinu til Títós. Nú er hann að væla greyið af því að ég er í tölvunni.

Svava frá Strandbergi , 30.8.2007 kl. 23:31

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Hæ hæ... ég vona að vinnan gefi þér margt, sonur minn málaði mikið þegar hann var lítill, ég geymdi fullt af myndum eftir hann, þær voru svo frábærar.  Vildi óska að hann hefði haft kost á því að fá leiðbeiningu frá þér.  Æji... elsku Tító.. hann á ekki sjö dagana sæla og leitar í skjól hjá æðsta yfirvaldinu á bænum.  Vona að þetta gangi allt vel hjá ykkur.

Ester Sveinbjarnardóttir, 30.8.2007 kl. 23:31

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Ester. Já myndlist barna er oft stórskemmtileg.

Svava frá Strandbergi , 30.8.2007 kl. 23:32

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

 Takk Guðmundur minn, Já, endilega farðu að mála. þú hefur örugglega gaman af því. Ég mun alveg getað sagt þér til ef þú vilt. Annars er þetta ekki saga sem er efst á færslunni heldur ljóð sem var eitt sinn ljóð dagsins á Ljóð.is

Svava frá Strandbergi , 31.8.2007 kl. 01:02

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Voðalega er þetta dónalegt ljóð eitthvað.

Sigurður Þór Guðjónsson, 31.8.2007 kl. 02:01

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Elsku tító já það er erfitt að skilja þá eftir en vonandi verður það í lagi. Til hamingju með ljóðbókina og nýu vinnuna.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.8.2007 kl. 09:53

8 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Til hamingju með vinnuna Guðný Svava.

Leitt með Tító

Ég hlakka til að koma að sjá sýningu hjá þér.

Já kannski maður fara að fikta til liti með Guðmundi, leyndir listamannadraumar blunda alltaf rétt handan við veruleikann

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 31.8.2007 kl. 10:17

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

takk allar.

Nimbus,  þú mátt ekki við miklu. Ég myndi nú segja að þetta væri bara erótískt ljóð. 

Svava frá Strandbergi , 31.8.2007 kl. 10:51

10 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

jahérna Guðný Mér fannst nú ljóðið í dag vera betra en færslan sem þú birtir í gær Hvað varðar sýninguna þína, er ekki upplagt að sýna líka með Steinu og Hauki sem voru með bloggmyndlistasýninguna um daginn? ég sá að Steina var að pæla í jólasýningu og þau vilja fá fleiri myndlistamenn í hópinn. En frábært fyrir börnin að fá alvöru listamenn í kennsluna, gangi þér vel

Guðrún Sæmundsdóttir, 31.8.2007 kl. 18:12

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Guðrún. Það væri kannski ekki svo vitlaust að sýna með þeim ef ég verð komin með nægar myndir.

Svava frá Strandbergi , 31.8.2007 kl. 20:37

12 Smámynd: www.zordis.com

Erótík er hin besta tík ....  Til hamingju með starfið, það verður án efa mjög gefandi og skemmtilegt.  Nemendur opnari en gengur og gerist .....

Blessun til Tító, veit vel hvað það er að vera með veikan kisulyng og að missa!  Knús á þig kæra og gangi þér vel með einkasýninguna, ljóðabókina og allt sem rekur á fjörurnar. 

www.zordis.com, 31.8.2007 kl. 21:45

13 Smámynd: halkatla

til hamingju með nýju vinnuna! og gangi þér vel með allt sem er framundan.

aumingja litli Titó, ég og Kassandra sendum honum hlýja strauma  

halkatla, 31.8.2007 kl. 21:48

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Til hamingju með núja jbbið, vegni ykkur Tíó sem allra best.

Kveðja:

Sigfús Sigurþórsson., 31.8.2007 kl. 22:53

15 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, erótíkin er fínasta tík zordís. Knús til baka og takk fyrir blessunina til Títós. Ekki veitir af því nú er búiið að bæta á hann steralyfjum til þess að reyna að hífa hann upp úr dorminu og lystarleysinu. Hann situr í kjöltu minni núna og lá oná maganum á mér áðan þegar ég horfði á sjónvarpið.

Anna Karen og Kassandra, takk fyrir kveðjuna til Títós og góðar óskir.

Sigfús, takk fyrir hamingjuóskir með nýja jobbið og árnaðaróskir til okkar Títós
.Kveðja 

Svava frá Strandbergi , 31.8.2007 kl. 23:42

16 Smámynd: kloi

Leiðinlegt að heyra þetta með Tító og Gosa.  En það er ekkert að marka mig ég er geldur. En ég og Max vinur minn, eigum í innilegu sambandi .....voðalega er ég orðinn dramatískur

kloi, 31.8.2007 kl. 23:58

17 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Kær kveðja til þín Klói og bið líka að heilsa Max.

Svava frá Strandbergi , 1.9.2007 kl. 00:50

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Til hamingju Guðný mín. Þú munt örugglega njóta þess.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.9.2007 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband