Leita í fréttum mbl.is

Nauðgunarlyfið Rohypnol öðru nafni Flunitrazepam á að taka af markaði!

Ég skora á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að svefnlyfið Rohypnol öðru nafni Flunitrazepam verði tekið af markaði hið fyrsta. Vitað er um fjölda dæma þess að óprúttnir aðilar noti lyfið sem hjálpartæki til þess að fremja svo hryllilegan glæp sem nauðgun er.

Lyfinu er laumað í drykki kvenna án þeirrar vitundar og veldur það því að fórnarlambið verður ófært um að koma nokkrum vörnum við þegar ódæðismaðurinn eða mennirnir nauðga því. Ennfremur veldur lyfið minnisleysi þannig að þolandinn getur ekki lýst útliti nauðgara eða öðrum aðstæðum varðandi glæpinn og sleppur því misyndismaðurinn eða mennirnir nánast ætíð við refsingu.

Mér finnst það hræðileg tilhugsun sem móðir ungrar stúlku, að vita til þess að  hún og  aðrar ungar stúlkur séu svo auðveld fórnarlömb annarra eins níðinga og nauðgarar eru og það fyrir tilstilli lyfs sem heilbrigðisyfirvöld á Íslandi leggja blessun sína yfir. 

Skora ég því á heilbrigðisráðherra að ganga sem fyrst í það að önnur eins ósvinna og það er, að ríkið beinlínis stuðli að því að nauðganir séu framdar, með sölu þessa lyfs,  leggist af hið snarasta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

TAKK!!

Heiða B. Heiðars, 23.8.2007 kl. 22:22

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sjálfsagt mál Heiða.

Svava frá Strandbergi , 23.8.2007 kl. 22:24

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sömuleiðis Guðmundur minn. Já, þetta er stórmerkt framtak hjá henni og mjög brýnt að þetta lyf verði bannað á Íslandi.

Svava frá Strandbergi , 24.8.2007 kl. 01:29

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er sammála þér.

Kristín Katla Árnadóttir, 24.8.2007 kl. 09:57

5 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Því miður er annað algengt svefnlyf sem einnig hefur þessa verkun, ég segi dóttur minni að best sé að drekka beint úr bjórflöskunni eða breezerflöskunni og láta hana aldrei í hendur annara. En ég held að þessi áhrif sem að nauðgarar eru að sækjast eftir á stúlkunum komi sterkust fram ef að lyfinu er blandað saman við áfengi.

Guðrún Sæmundsdóttir, 26.8.2007 kl. 12:04

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta þykja mér fréttir Guðrún. Ég skil að þú nefnir ekki lyfið með nafni.

Ung stúlka sem er mér náskyld varð fyrir því í teiti erlendis að nauðgunarlyfir var blandað í drykk hennar. Sem betur fór tóku vinir hennar eftir að hún var orðin vægast sagt öðruvísi en hún átti að sér og hjálpuðu henni heim. 

Svava frá Strandbergi , 27.8.2007 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband