Leita í fréttum mbl.is

Rolando Villazón, Placido Domingo og La traviata

Ég sat sem heilluð yfir heimildamyndinni í sjónvarpinu í kvöld um mexíkóska tenórsöngvarann, Rolando Villazón.
Hann söng m. a. aríur úr 'Rigoletto' og 'Carmen' og svo uppáhaldinu mínu 'La traviata', þar sem hann söng  og lék framúrskarandi vel,  nokkra valda parta úr hlutverki ´Alfredos' á móti 'Violettu Valery'.

Hann syngur eins og engill og leikur af miklum ástríðuhita, eins og hetjutenórar eiga að gera,  slagar meira að segja hátt upp í Placido Domingo átrúnaðargoðið sitt og  líka mitt auðvitað.

Mér fannst Placido samt myndarlegri á velli þegar hann var upp á sitt besta, heldur en Rolando, þó Rolando hafi líka þennan suðræna sjarma eins og Placido.

Ég fór nú ekki sjaldnar en tíu sinnum á 'La travita',  fyrir rúlmlega 20 árum síðan. Þá var Placido í hlutverki Alfredos en Theresa Stratas söng og lék Violettu Valery. Ég vílaði meira að segja ekki fyrir mér að ganga alla leið ofan úr efra - Breiðholti um hávetur í öll þessi tíu skipti, niðrí Sambíóin í Mjódd og klofaði stundum snjóinn upp fyrir miðja kálfa. Alltaf var ég útgrátin að hverri sýningu lokinni, samt var ég búin að sjá 'La traviata', tvisvar áður, í Óperunni með Carðari Cortes og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og grét þá líka auðvitað eins og múkki.

Óperur er mitt helsta yndi að hlusta á og horfa. Sögusvið óperanna er líka oft svo dramatískt  og eða rómantískt, þær spila á allan tilfinningaskalann. Að horfa á óperu finnst mér vera svipuð upplifun eins og maður sé svo ástfangin að maður sé beinlínis á bleiku skýi eða í sjöunda himni.

Semsagt, ég elska óperur og ég ætla að horfa á annað óperu-scan0010 myndbandið sem sonur minn keypti handa mér á Ítalíu fyrir fjölda ára,  við  fyrsta  tækifæri. Ég hef ekki tölu á hve oft ég hef horft á þetta myndband, sem er auðvitað með 'La traviata' og Placido Domingo og Theresu Stratas í aðalhlutverkunum. Ég ætla að horfa á óperuna með rauðvínsglas í annarri hendi og snýtuklút í hinni. Og ég hlakka óskaplega til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ætla að segja þér leyndarmál... hef aldrei farið á óperu. Ætla að kynna mér málið við fyrsta tækifæri.

Jóna Á. Gísladóttir, 21.6.2007 kl. 01:21

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég hef farið á óperu það var skemmtilegt.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.6.2007 kl. 10:20

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég elska tónlist af öllum toga og þá sérstakelga klassík og sumar óperur en hef aldrei séð eina. Er það ekki skrítið???

Eins og að elska hafið en hafa aldrei vaðið...

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.6.2007 kl. 11:59

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Missti af þessu en trúi þér alveg. Hef ekki séð óperur nema í TV en þær eru oft æðislegar.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.6.2007 kl. 12:48

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þú hlytur þá að gráta alveg gríðarlega á Rigolettó þegar hann drepur dóttur sína í misgripum í lokin og ég tala nú ekki um á Toscu þar sem mig minnir að allir drepist. Ég man ekki hvað stórstónskáld það varð að skilja eina óperuna sína ófullgerða af því að hann var óvart í sköpunargleði sinni búinn að drepa allar persónurnar þegar sagan var bara hálfnuð.   

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.6.2007 kl. 15:27

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já stelpur, þið verðið að fara í óperuna það hafa bara verið svo framúrskarandi leiðinlegar óperur í Íslensku óperunni undanfarið að þið verðið að fara til útlanda til að sjá alvöru óperu. 

Siggi, ég nota ekki snýtuklút þegar ég horfi á Rigoletto og Toscu, já og líka Aidu heldur borðklút. 

Svava frá Strandbergi , 21.6.2007 kl. 16:21

7 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ég fór einmitt svipað oft á First Blood ... sko fyrstu Rambó-myndina ;)
Ég reyni ekki einu sinni að fara á óperur - ég grenja með ekkasogum bara af því að horfa á ballettsýningu! BALLETT!! Ég fíla ekki einusinni ballett!

gerður rósa gunnarsdóttir, 21.6.2007 kl. 21:28

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hvers vegna grenjarðu þá með ekkasogum þegar þú horfir á ballet þegar þú fílar ekki einu sinni ballett Gerður Rósa? Grenjarðu þá úr leiðindum?
En þú ættir að horfa á fílana dansa ballett í einni í Disney teiknimyndinni þá myndirðu garga af hlátri, hvað heitir myndin nú aftur? Hún er líka með Mikka mús í hlutverki lærssveins galdrameistarans og tónverkið  Lærisveinn Galdrameistarans er spilað í þeim parti myndarinnar sem er öll byggð upp kringum klassíska músík. 

Svava frá Strandbergi , 21.6.2007 kl. 23:45

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Myndin heitir Fantasía. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.6.2007 kl. 23:52

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já einmitt, ég var með það einhvers staðar í minninu í hausnum á mér en gat ómögulega náð í það. Takk.

Svava frá Strandbergi , 22.6.2007 kl. 00:09

11 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Æ bara svona sýningar, þið skiljið (??) ... Allt of áhrifamikið eitthvað.

Panta þessa FANTA-síu með næstu ferð.

gerður rósa gunnarsdóttir, 23.6.2007 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband