Leita í fréttum mbl.is

Ég ætla að selja

Ég ætla að selja íbúðina mína á þriðju hæðinni í blokkinni og kaupa íbúð á jarðhæð með garði og helst sérinngangi, já og allra helst í tvíbýlishúsi .


Ég er búin að sjá það að það þýðir ekkert að vera að streðast við að labba þessa löngu stiga dag eftir dag svona slæm í bakinu. Svo langar mig í minn eiginn garð aftur til að dunda í, í friði og sjá hann vakna til lífsins á hverju vori.

Það er verst ef blessaðir innikettirnir mínir sleppa út og lenda undir bíl. En það er alltaf áhætta sem fylgir öllu. Svo er ég ekki svo viss um að þeir þori út eftir að hafa lifað inni í íbúð,  annar í tæp níu ár og hinn fimm ár.

Það er líka alveg nóg fyrir mig að búa í þriggja herbergja íbúð, fjögur herbergi er fullmikið fyrir mig eina og tvo ketti. En ég verð að kaupa þriggja held ég til þess að hafa eitt vinnuherbergi til að mála  og teikna í.

Ég hef skánað í bakinu og fætinum sem betur fer af því börnin mín hafa farið út í búð fyrir mig og ég ekki þurft að labba stigana með þunga poka. Kannski þarf ekkert að skera mig eftir allt saman. Ég er líka orðin leið á að labba stigana því það tekur mig óratíma að ganga upp oo niður bara eina tröppu í einu.

Nú er ég búin að fá úthlutað ferðaþjónustu og get farið að endasendast út um allar jarðir í heimsóknir og fleira og svo náttúrulega sjúkraþjálfunina. Þarf ekki lengur að taka rándýra leigubíla. Verst að ég get ekki keypt mér bíl því ég hef aldrei þorað að keyra í  henni Reykjavík.

Ég ætla að hrngja í taugaskurðlækninn á morgun og sjá hvað hann segir, hvort hann ætli að skera mig eður ei.

Góða nótt öllsömul. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ef kisurnar fara á jarðhæð er líka alveg hugsanlegt að þær lendi undir valtara.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.5.2007 kl. 00:32

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já og ef þú ferð í þakíbúð gætu þær dottið fram af svölunum (segi sonna).  Gott hjá þér að skipta um umhverfi.  Óska þér góðs bata.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2007 kl. 02:01

3 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Það held ég að sé stórsniðug hugmynd :)

gerður rósa gunnarsdóttir, 29.5.2007 kl. 08:39

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er á jarðhæð með litin garð það er mjög gott vonandi færð þú slíka íbúð þetta er mikil bunur, gangi þér vel Guðný mín bata kveðjur frá mér.,

Kristín Katla Árnadóttir, 29.5.2007 kl. 10:00

5 Smámynd: halkatla

Ég óska þér og kisunum velfarnaðar

ég á líka innikisu, það er mikið öryggi að vita af henni inni. En hún hefur tvisvar hoppað útum glugga og lent í smá falli. Þau eru svo snarbiluð þessi skinn þegar þau er lítil.  

halkatla, 29.5.2007 kl. 12:24

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gangi þér vel með þessar breytingar. Ég átti nú mjög erfitt með að labba upp til þín og skil ekki hvernig þú getur þetta. En harkan í manni kemur manni langt. Baráttukveðjur.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.5.2007 kl. 12:40

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir góðar kveðjur. Kisurnar undir valtara Siggi? Er ekki nær að halda að það verði ég? 'Ég þekkti eitt sinn fatla fól sem keyrði um allt í hjólastól með bros á vör en berjandi samt lóminn. Hann varð eitt sinn undir valtara og varð að klessu Ojbara!......

Svava frá Strandbergi , 29.5.2007 kl. 14:48

8 Smámynd: www.zordis.com

Hann Nimbus slaer á létta strengi eda zannig!  Fádu zér íbúd í grónu hverfi svo zad sé öruggt ad enginn valtari né hrekkjubródir sé í grennd!  Láttu zér batna

www.zordis.com, 29.5.2007 kl. 22:50

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

það er yndislegt að búa á jarðhæð með smá garðskika út af fyrir sig. Og ef hann er vel girtur þá gætu jafnvel kisurnar þínar setið með þér þar úti og notið sólarinnar (þegar hún er).

Til hamingju með að vera komin með shauffer. Ég ætla að fá mér einn slíkan einhvern daginn.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.5.2007 kl. 10:45

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Jóna, þetta er rosa munur að vera með shauffer. Ég er búin að bregða már af bæ bæði í dag og í gær. Ég er bara eins og hefðardama og borga bara sem svarar helmings fargjaldi í strætó fyrir hverja ferð. 

Annars las ég shauffer fyrst sem sheffer og datt eitt augnablik í hug hvort ég hefði virkilega keypt mér einn german shepard hund í síðasta alzheimer kasti og væri náttúrulega búin að segja öllum í bloggheimum frá því. 

Svava frá Strandbergi , 31.5.2007 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband