Leita í fréttum mbl.is

Móđgunargirni

Ţađ er meira hvađ sterarnir fara illa í hann Tító. Hann er orđinn eitthvađ svo taugaveiklađur og móđgunargjarn.

Ég ţarf meira ađ segja ađ dekstra hann til ţess ađ snúa sér ađ mér ţegar viđ erum komin upp í rúm. Hann liggur alltaf út á ystu brún á rúmstokknum og snýr bakinu í mig og mađur sér ţađ alveg á baksvipnum hvađ hann er ákveđinn í ađ sýna mér ađ hann sé illur út í mig.

Svei mér ţá ef viđ vćrum í hjónabandi myndi ég halda ađ viđ ćttum viđ alvarlegan vanda ađ stríđa . Eyrun á honum vísa alltaf beint aftur eins og hann leggi kollhúfur og skottiđ sveiflast fram og til baka af ţessum líka fítonskrafti. Hann er ekki neitt slappur í ţví ţessi skrattakollur ţó hann sé á lyfjum. 

Stundum langar mig mest til ađ klípa hann í ţetta lođna skott sitt. En ég stilli mig alltaf um ţađ ţví hann er nú einu sinni ástarpungurinn minn ţó hann sé ţessi fýlupoki.  Ţess vegna passa ég mig á ţví ađ tala alltaf blíđlega til hans og spyr hvort ţađ sé ekki allt í lagi međ hann og svoleiđis. En hann ţykist aldrei heyra í mér og virđir mig ekki viđlits frekar en ég veit ekki hvađ.

Kannski hann sé orđinn heyrnarlaus líka. Hann er allavega orđinn ţađ gamall ađ hann gćti veriđ farinn ađ missa heyrn kominn á sextugasta og fimmta aldursár ef hann vćri mađur en ekki köttur. 
En ţetta endar alltaf međ ţví ađ ég lćt í minni pokann og dreg hann ósköp varfćrnislega ađ mér og klappa honum í bak og fyrir í leiđinni međan ég hjala viđ hann í gćlutón.

Og haldiđi ekki ađ kattarskömmin mali svo hástöfum eftir allan leikaraskapinn ţegar hann er búinn ađ koma sér fyrir međ ađra framlöppina um hálsinn á mér.

Segiđi svo ađ kettir séu ekki klókir.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Ţór Jónsson

Ţađ kýs hver og einn sinn bólfélaga.

Pétur Ţór Jónsson, 23.2.2007 kl. 01:00

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Einmitt.

Svava frá Strandbergi , 23.2.2007 kl. 01:05

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Guđmundur ţarna kom skýringin. Ţakka ţér fyrir.

Svava frá Strandbergi , 23.2.2007 kl. 11:26

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband