Leita í fréttum mbl.is

Nafnið


'en orðstír deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.'

Hún lá endilöng á gangstéttinni í Bankastræti og skrifaði nafnið sitt á grasið við götukantinn.
Hún skrifaði með rauðu bleki svo nafnið væri vel sjáanlegt á grænu grasinu. Hún var ekki í neinum fötum en hafði vafið gamalli sæng utan um sig til þess að hylja nekt sína.
Hún var hálfhrædd um að einhver myndi amast við henni, þar sem hún lá á maganum þvert yfir gangveginn, eða saka hana um að fremja skemmdarverk með því að pára svona á grasið. En fólkið virtist ekki taka eftir henni, heldur steig hiklaust ofan á hana á hraðferð sinnni upp eða niður götuna
Hana var farið að verkja í bakið af því að vera svona fótum troðin en lét sig hafa það. Hún vissi sem var að hún varð að gera allt fyrir nafnið.
Þegar hún hafði lokið við að skrifa hálfa leið frá kvennaklósettinu niður að Lækjargötu tók hún sér smáhvíld og kveikti sér í sígarettu.
Hún saug áfergjulega að sér reykinn og leit yfir verk sitt.
Við augum hennar blasti kraftaverk og henni varð ljóst að Guð hafði stýrt hendi hennar, því á hverjum þeim stað sem hún hafði skrifað nafnið sitt uxu nú rauðar rósir.
Hún drap í sígarettunni og fleygði henni umhugsunarlaust í göturæsið. Svo hélt hún áfram að skrifa.
En nú þurfti hún að skrifa mun hraðar en áður því sólin var horfin, dökkir kólgubakkar voru að hrannast upp á himninum og það leit út fyrir rigningu.
Hún varð að ljúka verkinu áður en það byrjaði að rigna því líklega myndi gamla sængin sem hún notaði sem yfirhöfn gegnblotna ef það kæmi væta á hana.
Að lokum skrifaði hún síðasta stafinn. Verkið var fullkomnað og hún lagði frá sér pennann sigrihrósandi.
En þar sem hún sat þarna var hún skyndilega lostin skelfilegri hugsun, sem fyllti hana smátt og smátt nagandi óvissu.
Hún hafði ekki hugmynd um hvort rauða blekið sem hún hafði skrifað með væri vatnsekta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir Guðmundur minn.

Svava frá Strandbergi , 22.2.2007 kl. 01:47

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mjög myndrænt og rautt og grænt er alltaf sterkt saman. Væri gaman að sjá myndverk um þessa hugmynd....sögu. Ég elska svona litlar skrítnar sögur. Takk

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.2.2007 kl. 10:51

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Katrín mín.

Svava frá Strandbergi , 22.2.2007 kl. 14:31

4 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Gengið hafði hún stíg stíga,

róið hafði hún ál ála,

leitað frá manni til manns,

borið upp mál mála,

en aldrei fyrirfannst reiðubúin

ein einasta sála.

Úr Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr Kötlum.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 14:37

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Pétur þú kemur oft með skemmtileg og falleg ljóðadæmi. Við eigum sameiginlegan áhuga á ljóðum. En fæst þú eitthvað við að yrkja? Fyrirgefðu framhleypnina.

Svava frá Strandbergi , 22.2.2007 kl. 15:12

6 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Ég þekki mín takmörk og reyni ekki yrkingar, á eina eða tvær ljóðabækur, ég virkilega öfunda allt þetta fólk sem getur komið hugsunum sínum og tilfinningum svona fallega á blað, þar með talið fólk sem hefur það í höndum sínum að geta málað eins og þú, sætti mig við litabækur afabarnanna.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 15:34

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir Mikki refur.


Kv. Hérastubbur bakari.

Svava frá Strandbergi , 22.2.2007 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband