Leita í fréttum mbl.is

Sindrandi neistar frá Guðanna sól

Mér er gleði í huga því litla ljósið hann Jónatan Davíð sonarsonur minn varð tveggja ára í dag.
Fjölskylda og vinir voru samankomnir í afmælinu til þess að fagna þessum merkis áfanga og allir sungu afmælissönginn tvisvar áður en Jónatan Davíð blés á kertin með hjálp pabba síns.
Elísa Marie systir hans 5 ára, fékk líka gjöf þó hún ætti ekki afmæli og Daníel bróðir hennar 4 ára sömuleiðis.
Elísa Marie var í bleikum kjól og dansaði um allt gólfið í stofunni eins og balletdansmær. Hún æfir íþróttir og er orðin svo liðug að hún kemst bæði í splitt og spíkat.
Langt er orðið síðan ég gat sýnt svona snilldartakta.
Ég hef náttúrulega mikinn metnað fyrir Elísu Maries hönd og ég sé hana í anda dansa á sviði í Þjóðleikhúsinu þegar hún hefur aldur til sem primaballerina. Svo söng hún líka afmælissönginn eins og engill. Hún gæti þessvegna allt eins orðið óperu díva.
Daníel settist í sófann hjá mér og sýndi mér stoltur machintos bílaflotann sinn, alls 5 bíla sem hann keyrði fram og til baka og upp og niður sófabakið í allskonar beygjum og krókaleiðum á hvínandi hraða.
Hann verður örugglega heimsfræg kappaksturshetja og vinnur stóra sigra. Kannski hann verði næsti heimsmeistari í kappakstri.
Jónatan Davíð afmælisbarnið vildi koma til ömmu og sannaði að hann er klókur í því að raða misstórum plasthringjum í næstum því réttri röð upp á staut. Svo klappaði hann saman lófunum af hreykni yfir dugnaði sínum.
Mamma hans sagði mér að hann hefði meira að segja nefnt Elísu Marie systur sína með nafni um daginn.
Ég er klár á því að Jónatan Davíð er snillingur þó hann sé fæddur með Downs heilkenni. Og svo er hann lítill engill líka.
Jónatan Davíð verður ef til vill ekki kappaksturshetja eða ballettdansari en ég trúi því að  hann verði samt sem áður þarfur þjóðfélagsþegn á einhverju sviði.
Og eitt er pottþétt og mikilvægast. Ég veit að hann verður alltaf hamingjusamari en flestir aðrir. 
Samt olli fæðing hans, sem átti að verða okkur öllum í fjölskyldunni gleðiefni, sorg á sínum tíma.
Var eiginlega hálfgert reiðarslag. Sérstaklega þó fyrir móður hans og föður en þau eiga samt, Guði sé lof, tvö heilbrigð börn fyrir.
En við trúum því að hver einstaklingur sem fæðist hér á jörð hafi fyrirfram ákveðið hlutverk og þjóni sérstökum tilgangi. 
Sorgin yfir fæðingu Jónatans Davíðs snerist því upp í gleði og sátt í hjörtum okkar.  
Sátt við lífið sem birtist okkur í svo margvíslegan myndum líkt og sindrandi neistar frá Guðanna sól og lýsa okkur leiðina heim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Ég held að það sé alltaf einhver tilgangur með okkur hverjum einstakling, hvort sem við komum í þennan heim heilbrigð eða ekki. Þessir "sérstöku" einstaklingar eru oft þeir sem kenna manni mest. Allavega finnst mér minn elsti sonur sem er með asperger syndrome kenna mér oft meira en ég honum.. Til hamingju með afmælisbarniðAgný.

Agný, 12.2.2007 kl. 01:02

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

þakka ykkur fyrir Agný og Guðmundur.

Svava frá Strandbergi , 12.2.2007 kl. 11:31

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir Arna.

Svava frá Strandbergi , 12.2.2007 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband