Leita í fréttum mbl.is

'Þar sem jökulinn ber við loft'

c_my_documents_my_scans_2007-02_feb_scansolarlag320004

Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg''Þar ríkir fegurðin ein ofar hverri kröfu'


Þessi orð skáldsins Halldórs Laxness komu upp í huga mér í dag þegar ég var að velta fyrir mér öllum þessum neikvæðu og sorglegu fréttum sem dynja á okkur í fjölmiðlum og ég nota þessa vatnslitamynd mína til þess að tjá hið fyrirheitna land.


Hverstu langur tími ætli líði uns maðurinn þarf ekki lengur að búa við neinar sorgir og þess vegna verði gleðin honum  ekki nauðsynleg?
Ætli það verði nokkurn tíma meðan hann býr á þessari jörð? Ætli við þurfum ekki fyrst að ganga á fjallið (jökulinn) og finna þar Guð okkar áður en hin harðneskjulega jörð sem við höfum skapað okkur sjálf með verkum okkar getur líka fengið hlutdeild í himninum með fegurð og  friði meðal okkar jarðar barna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Ég er hræddur um að við fáum ekki hlutdeild í himninum meðan við búum á þessari jörð ...

Hlynur Þór Magnússon, 10.2.2007 kl. 04:18

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir athugasemdina Hlynur. Já þetta er líklega rétt hjá þér. Stundum óskar maður þess ómögulega.
En mig langar að segja þér að ég er mjög hrifin af skrifum þínum.

Svava frá Strandbergi , 10.2.2007 kl. 04:26

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Guðríki er innra með yður sagði nú einhver gaurinn. Á jöklinum er bara skítakuldi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.2.2007 kl. 04:27

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Alltaf í veðrinu, Nimbus! Við finnum ekkert fyrir kulda þegar við erum orðin heilög í andanum.

Svava frá Strandbergi , 10.2.2007 kl. 04:30

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Víst getum við átt hlutdeild í himnum á jörðinni. Það eru engar fjarlægðir. Það er bara blekking. En myndin er falleg Guðný. Mjög falleg.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.2.2007 kl. 09:26

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir að segja að myndin mín sé falleg Katrín. Met álit þitt nefnilega mikils.

Svava frá Strandbergi , 10.2.2007 kl. 12:02

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir þitt innlegg Guðmundur minn.

Svava frá Strandbergi , 10.2.2007 kl. 14:23

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka þér fyrir það Arna mín. En þetta er nú óþarfa svartsýni hjá þér að þú fáir ekki hlutdeild í nokkru öðru.

Svava frá Strandbergi , 10.2.2007 kl. 18:42

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Takk, kæra Guðný Svava. Alltaf skal þér takast að skapa góða tilfinningu og góð hugrenningatengsl. Þetta er ein fallegasta setning á íslensku, að mínu mati, eins og margar úr smiðju Laxness og Þórbergs. Þetta er setning se mér kemur í huga þegar eitthvað bjátar á. Svona eins og sumir hugsa, ja, guðséossnæstur, látum oss biðja.... Það hefur aldrei gefi mér neitt, sorry. Mér finnst í raun og veru svo djúp hugsun í þessari setningu og svo djúp tengslin sem hún veldur, að fá orð ná þar um. Eiginlega segir Nimbus allt sem segja þarf: guðsríki er innra með yður og á jöklinum er bara skítakuldi!!!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2007 kl. 22:48

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

PS: Það er að verða venjubundið stef hjá mér í þessu nýja umhverfi skoðanaskipta, að ég þarf að segja í post scriptum, - að ég meinti þetta og ég meinti hitt, semsé; í fyrri færslu vantaði stafi og svoleiðis...ææææ, hvað er gífurlega eilíflega erfitt að vera perfeksjónísti en skrifa hratt...og kannski hugsa bara takmarkað...nnnnn....?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2007 kl. 22:51

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Fyrirgefðu, gerði mér ekki grein fyrir alvarleika málsins. Enn og aftur, ætlaði mér ekkert annað en hlutdeild annarra í fegurð heimsins. Allrabestu kveðjur frá mér.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2007 kl. 23:34

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þér er fyrirgefið.

Svava frá Strandbergi , 11.2.2007 kl. 06:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband