Leita í fréttum mbl.is

Tító veikur eftir allt saman.

Ég minntist á ţađ hér um daginn á blogginu ađ Tító hefđi snúiđ á Dauđann og mig. Ég hefđi haldiđ hann vera veikan en svo hefđi ekkert veriđ ađ honum.
Ţetta var ekki allskostar rétt hjá mér ţví Tító var orđinn veikur í alvöru daginn eftir.
Ég fór međ hann upp á Dýraspítala í morgun og dýralćknirinn sagđi ađ svona balinese kettir yrđu í mesta lagi 9 - 13 ára gamlir en Tító verđur einmitt 9 ára í nóvember nćstkomandi.
Ég sagđi m. a. viđ  dýralćkninn ţegar hann var ađ skođa Tító ađ mér hefđi veriđ gefinn hann sem kettlingur, af konu sem tók hann og systkini hans ađ sér ţegar átti ađ farga ţeim öllum í einu lagi.
Ég hefđi samt aldrei hugsađ út í ţađ fyrr en nú ađ ţađ hefđi veriđ eitthvađ undarlegt viđ ţađ ađ farga heilu goti af rándýrum kettlingum.
Dýralćknirinn varđ hálfskrýtinn á svipinn viđ ţessi orđ mín,  en sagđi svo undirfurđulega.  'Ćtli ţetta hafi ekki veriđ systkingot?' 
Ţá rann upp fyrir mér ljós, auđvitađ! ţarna var hún loksins komin, skýringin á erfđagallanum í nýrunum og endalausu veikindunum hans Títós!
Fyrst fann ég fyrir mikilli reiđi í garđ konunnar sem gaf mér Tító á sínum tíma og hugsađi međ mér ađ ţarna hefđi hún gert mér Bjarnargreiđa. 
En mér rann fljótlega reiđin ţegar ég fór ađ hugsa málin og nú sé ég ekki eftir neinu.
Ekki ţví ađ vaka oft heilu nćturnar yfir Tító veikum, öllum áhyggjunum,  né ţeim háu fjárhćđum sem ég hef pungađ út vegna heilsufars hans.
Tító hefur nefnilega gefiđ mér svo miklu meira en hann hefur kostađ mig. Hann hefur gefiđ mér skilyrđislausa ást.
Nú er Tító kominn á 6 daga sprautukúr og ég sprauta hann sjálf einu sinni á dag.
Dýralćknirinn sagđi ađ ef hann lagast ekki ađ ţeim tíma liđnum,  yrđum viđ kannski ađ fara búa okkur undir ţađ,  'ađ taka til annarra ráđa'. 
Men,  ţangađ til hugsa ég bara - 'Den tid den sorg.'


  DSC00011


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, ég vona ađ hann hjarni viđ í núna eins og áđur ţegar hann hefur fengiđ sprautukúr. En hann er víst ađ komast á aldur hvađ úr hverju. 

Svava frá Strandbergi , 6.2.2007 kl. 00:49

2 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Augun mín og augun ţín! Ó, ţá fögru steina. Getur ţú sagt viđ Tító. Eđa glyrnur eru ţađ víst - eđa hvađ.  

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 6.2.2007 kl. 01:11

3 Smámynd: Katrín Snćhólm Baldursdóttir

ć.....ţiđ eruđ fólk sem mann langar virkilega ađ ţekkja.

Katrín Snćhólm Baldursdóttir, 6.2.2007 kl. 02:15

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir ţađ Katrín. ţađ er gagnkvćmt.

Svava frá Strandbergi , 6.2.2007 kl. 10:43

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nei, nei Sigurđur ţađ eru klárlega augu, ţví augun hans Títós eru blá. Glyrnur eru alltaf gular og Gosi građnagli er međ glyrnur.

Svava frá Strandbergi , 6.2.2007 kl. 10:46

6 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Er ekki búiđ ađ gelda Gosa? Er hann virkilega alltaf sami glaumgrađgosinn?

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 6.2.2007 kl. 22:06

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jú, en Gosi er svo súpergrađur ađ gelding dugar ekki. Svo er hann líka hommi alltaf ađ riđlast á aumingja Tító, sárveikum.
En Tító var svo sem ekkert betri viđ Gosa ţegar hann hafđi heilsu til. ţessvegna sagđi ég alltaf ađ ég byggi međ tveimur hommum ţegar ég var spurđ hvort ég byggi ein.

Svava frá Strandbergi , 6.2.2007 kl. 22:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband