Leita í fréttum mbl.is

Nafnið

'en orðstír deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.'

Hún lá endilöng á gangstéttinni í Bankastræti og skrifaði nafnið sitt á grasið við götukantinn.
Hún skrifaði með rauðu bleki svo nafnið væri vel sjáanlegt á grænu grasinu. Hún var ekki í neinum fötum en hafði vafið gamalli sæng utan um sig til þess að hylja nekt sína.
Hún var hálfhrædd um að einhver myndi amast við henni, þar sem hún lá á maganum þvert yfir gangveginn, eða saka hana um að fremja skemmdarverk með því að pára svona á grasið. En fólkið virtist ekki taka eftir henni, heldur steig hiklaust ofan á hana á hraðferð sinnni upp eða niður götuna
Hana var farið að verkja í bakið af því að vera svona fótum troðin en lét sig hafa það. Hún vissi sem var að hún varð að gera allt fyrir nafnið.
Þegar hún hafði lokið við að skrifa hálfa leið frá kvennaklósettinu niður að Lækjargötu tók hún sér smáhvíld og kveikti sér í sígarettu.
Hún saug áfergjulega að sér reykinn og leit yfir verk sitt.
Við augum hennar blasti kraftaverk og henni varð ljóst að Guð hafði stýrt hendi hennar, því á hverjum þeim stað sem hún hafði skrifað nafnið sitt uxu nú rauðar rósir.
Hún drap í sígarettunni og fleygði henni umhugsunarlaust í göturæsið. Svo hélt hún áfram að skrifa.
En nú þurfti hún að skrifa mun hraðar en áður því sólin var horfin, dökkir kólgubakkar voru að hrannast upp á himninum og það leit út fyrir rigningu.
Hún varð að ljúka verkinu áður en það byrjaði að rigna því líklega myndi gamla sængin sem hún notaði sem yfirhöfn gegnblotna ef það kæmi væta á hana.
Að lokum skrifaði hún síðasta stafinn. Verkið var fullkomnað og hún lagði frá sér pennann sigrihrósandi.
En þar sem hún sat þarna var hún skyndilega lostin skelfilegri hugsun, sem fyllti hana smátt og smátt nagandi óvissu.
Hún hafði ekki hugmynd um hvort rauða blekið sem hún hafði skrifað með væri vatnsekta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Uff! Ég skil ekki þessa súrealísku færslu.

Þær eru alltaf skemmtilegar  myndirnar þínar, jafnvel líka þær sem þú gerir ekki sjálf. Mér finnst t.d. svo einkennilega sterkur svipur með Geir og græna kallinum fyrir neðan hann.

Sigurður Þórðarson, 4.4.2009 kl. 23:19

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Núúúú! Jæja, kannski á maður bara ekkert að skilja hana Sigurður.

Já, þeir eru glettilega líkir Geir og Jim Carrey í líki Trölla í myndinni sem var gerð eftir sögu Dr Seuss. Svo er Bjarni Benediktsson nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins nákvæmlega eins í framan og annar grænn kall. Sá heitir Shrek og Bjarni Ben. er alveg eins og sá gaur, það er að segja þegar hann er í mannsgerfinu.

Svava frá Strandbergi , 5.4.2009 kl. 00:21

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk

Þú ert glettin.

Sigurður Þórðarson, 5.4.2009 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband