Leita í fréttum mbl.is

Ég man nú þá tíð þegar maður var með gerviaugnahár bæði fyrir ofan og neðan augun

og notaði augnahárabrettara til þess að sveigja upp efri augnhárin. Það lá við að augun  á manni litu út eins  köngulær með ólteljandi lappir eftir að herlegheitin höfðu verið vandlega límd niður með hjálp flísatangar og einhvers 'súperglús.'  Samt áttu gerviaugnhárin það til að detta af þegar síst skyldi, eða þá að þau rétt héngju á, lafandi hálf niður á miðjar kinnar.

En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. En í dag eru til lyf við öllu mögulegu sem tengist útlitinu. Kollagen krem t.d. sem á að smjúga undir húðina og byggja upp rýrnandi kollagen sem á annars að halda húðinni stinnri og frísklegri. En læknar segja samt að þau krem geri akkúrat ekkert gagn frekar en önnur hrukkukrem sem konur bera á sig í tonnatali. En hversu mikið er að marka lækna?

Nú svo eru auglýst undrakrem sem  bera skal á varirnar til þess að gera þær þrýstnari og kyssilegri. Já og meira að segja krem með svipaða verkun sem á víst að lyfta brjóstunum og gera þau stinnari.

Krem til þess að eyða sliti á maga eftir barnsburð er líka til og á að byrja að smyrja því á mallakútinn allt frá því hann byrjar að bunga út. En þannig krem hafa nú verið  á markaði í áratugi.

Krem af allskonar gerðum hafa verið notuð af kvenþjóðinni til fegrunar í þúsundir ára. Flest öll eru þau upprunnin í jurtaríkinu, því konur  voru naskar á að finna þær plöntur sem gögnuðust til þess að bæta útlitið. Þær sem höfðu efni á, eins og hin fræga og klára drottning Kleópatra böðuðu sig jafnvel upp úr ösnumjólk alsnaktar til þess að mýkja og lýsa húð sína. 

Það kemur fyrir ekki þó einhverjir hneykslist á kvenpeningnum vegna hégómans, því konur eru og verða  konur og svífast vel flestar einskis til þess að líta vel út í augum karla. Annars þarf ekki karlþjóðina til, því sumar konur vilja líta vel út eingöngu fyrir sig sjálfar og það finnst mér langsniðugast.

Það er umhugsunarvert að nú á dögum eru það nær eingöngu karlar sem finna upp þessi nýju undrakrem og aðrar snyrtivörur. (Sem sagt þeir eru eftir allt saman ekki ánægðir með okkur eins og við erum frá náttúrunnar hendi) Hvað eru svo sumir karlar að agnúast út í þær konur sem að nota þessa framleiðslu??

 


mbl.is Lyf sem lengir augnhár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Nú skil ég þetta með Zóu og asnana! Ertu búin að heyra eitthvað frá henni í Grikklandinu?

Flott færsla um fegurð sem kemur jafnt að innan sem að utan!

www.zordis.com, 16.1.2009 kl. 20:41

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hahahaha! Þú ert alveg heimsmet Zordís. Ég skildi fyrst ekkert hvað þú áttir við með að nú skildir þú þetta með Zou og asnana. En svo rann uppp fyrir mér ljós. Auðvitað! Já, ég fékk langt bréf frá henni á netinu. Skammast mín fyrir að vera ekki enn búin að svara henni.

Svava frá Strandbergi , 16.1.2009 kl. 21:02

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég þurfti aldrei að nota slíkt skemmtileg færsla Guðný mín. Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 17.1.2009 kl. 11:54

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús til þín líka Katla mín

Svava frá Strandbergi , 17.1.2009 kl. 12:07

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

já eins og það eru flestir karlmenn sem skapa týskuna á módelin sem eru blessuð að detta sundur úr hor., föt fyrir litla drengi

Knus

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.1.2009 kl. 20:33

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Enda eru þeir flestir hommar þessir tískuhönnuðir Steina svo það er ekkert skrýtið að þeir skapi föt á drengi. Annars hef ég ekkert á móti hommum né bisexual fólki.

 Annars byrjaði þessi renglutíska nú með modelinu heimsfræga Twiggy. Áður en hún kom til sögunnar voru modelin í þokkalegum holdum. Eitt model  The shrimp eins og hún var kölluð  var eitt þekktasta model í heimi þegar Twiggy kom fram á sjónasviðið. Hún sagði í öfundssýki sinni gegn Twiggy að þessi hortíska væri bara tískubóla sem myndi hverfa fljótlega. En fáir muna eftir The shrimp nú á dögum en allir vita hver Twiggy  var og er. 

Svo maður spyr sig, var Twiggy sem sköpuð fyrir hommahönnuðina eða er þetta bara tilviljun að hún varð fræg? En holdafar kvenna hefur nú verið breytilegt í gegnum aldirnar. Þegar Renoir var uppi málaði hann akfeitar konur, en þá þótti flottast að vera feitur.

Ég held að þessi renglutíska hafi eitthvað með jafnrétti kynjanna að gera, að konur vilji vera líkari körlum í varxtarlagi. Annars er ekki hægt að neita þvi háu og grönnu stúlkurnar bera föt betur uppi en þær sem eru í eðlilegum holdum, sérstaklega í sjónvarpi sem gerir alla helmingi feitari en þeir eru.En tískan er svo sannarlega harður húsbóndi.

Knús til þín

Svava frá Strandbergi , 18.1.2009 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband