Leita í fréttum mbl.is

Sam-Fara-Skermur

Ekki get ég varist ţví ađ í hvert sinn sem ég geri mér ferđ í Kolaportiđ til ţess ađ kaupa mér harđfisk og lyktin leggur á móti mér svo yndislega stćk ađ mér detti ekki gamall elskhugi minn í hug.
Reyndar var hann sá síđasti í röđinni af langtíma bólfélögum mínum og ţó nokkur ár liđin frá ţví viđ slitum okkar samvistum.
En harđfisksins vegna er ekki svo auđvelt ađ afmá minninguna um eldheita ástarfundi í vistarverum ţessa fyrrverandi kćrasta míns. En hann bjó um ţessar mundir í einu herbergi međ ađgangi ađ bađi í kjallaranum hjá ömmu sinni í hrörlegu húsi í miđborg Reykjavíkur
Ţađ var smá aldursmunur á okkur honum í vil en ekki fann ég fyrir ţví, nema ţá í bólinu, en ţar eyddum viđ megninu af tíma okkar í ţessum niđurgrafna en ţó funheita kjallara.
Kjallari ţessi var sannkallađ ástarhreiđur ţví viđ pćldum ekki í neinum óţarfa eins og ađ ganga ţokkalega um eđa vaska upp  enda óhćgt um vik ţví sökum ţrengsla neyddist ástmögur minn til ţess ađ nýta herbergi sitt jafnframt sem geymslu og forđabúr.
Ţađ var einna helst skortur á birtu sem hrjáđi okkur ţví skerminn vantađi á eina lampann í herberginu og ţar sem glóandi perann skar í augun, kusum viđ ađ kveikja aldrei ljósiđ.
Ţađ krafđist ţví oft hinnar ýtrustu lipurđar ađ skakskjóta sér upp í rúm, sér til yndisauka ţví allt um kring, var staflađ hinum ýmsu nauđsynjavörum sem menn ţurfa á ađ halda sér til lífsviđurvćris.
Má ţar til dćmis nefna fiskibollur í dósum sem viđ átum kaldar beint upp úr dósinni, kartöflustrimla einnig í dósum og ýmislegt annađ matarkyns sem ekki ţurfti eldunnar viđ.
Ţađ var ađeins í hádeginu á sunnudögum sem svo mikiđ var viđ haft ađ prímusinn var dreginn fram undan rúminu og sođin ilmandi kjötsúpa sem okkur ţótti hin mesti hátíđamatur.
Staflar af hreinlćtisvörum stóđu svo hér og ţar um herbergiđ og entust ţćr birgđir öll ţau ár sem viđ héngum saman ađ undanskildum skeinipappírnum sem endurnýjađur var reglulega eins og lög gera ráđ fyrir. En silfurskotturnar á bađgólfinu setti ég dálítiđ fyrir mig til ţess ađ byrja međ, ţó lćrđist mér fljótlega ađ óţarfi vćri ađ óttast  ţau kvikindi  ţví ţćr hurfu undantekningarlaust eins og unglingar sem eiga ađ fara út međ rusliđ um leiđ og ljósiđ var kveikt.
En hvar kemur ţá harđfiskurinn inn í myndina? Jú, unnusti minn elskađi harđfisk nćstum ţví jafn heitt og mig sjálfa og ţess vegna ţótti mér hann líka einstaklega góđur. Best ţótti okkur ađ spćna hann í okkur í bćlinu, ţegar viđ lágum ţar örmagna eftir unađ og erfiđi ástarleikjanna og nenntum ómögulega á lappir.
Rođinu hentum viđ svo undir rúm en ţar harđnađi ţađ og gegnum ţurrkađist í hitanum frá rúmstćđinu uns frá ţví  lagđi međ tíđ og tíma hina yndćlustu angan um allt herbergiđ.

Langt er síđan sá ég hann..... En heyrt hef ég ađ ţessi fyrrverandi ástarpungur minn sem var sannkallađur listamađur á fleiri sviđum en bólfiminn einni saman, búi ekki lengur í kjallaraholunni, - - hann hafi grćtt offjár á einkaleyfi á forláta lampaskermi úr fiskrođi.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergur Thorberg

Ha ha ha ha......

Bergur Thorberg, 12.1.2009 kl. 19:27

2 Smámynd: www.zordis.com

Ţú ert yndi og hann líka! Fékk hann virkilega einkaleyfi á hreisturskermana?

www.zordis.com, 14.1.2009 kl. 12:56

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hahahha rómantískt! haha

Ragnhildur Jónsdóttir, 14.1.2009 kl. 14:41

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Zordís, ţetta er svona mest allt rétt og satt í grunninn, en endirinn er algjör skáldskapur.  Annars ert ţú líka algjört yndi Zordís mín.

Kaffi og Ragnhildur, takk fyrir kommentin ykkar.

Svava frá Strandbergi , 14.1.2009 kl. 15:17

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband