Leita í fréttum mbl.is

Það er svo margt sem ég get verið þakklát fyrir og sem ég elska

Ég elska auðvitað börnin mín og barnabörnin fyrst og fremst. Svo elska ég sjálfa mig systkini mín, frændfólk og vini og vinkonur og öll lítil börn.

En ég elska líka öll dýr og  þá fyrst og fremst kisurnar mínar, Tító hinn goðumlíka og Gosa litla graðnagla. Já, og svo þykir mér  líka vænt um frænda þeirra, hann Mala svala, hans Sigga bróður og Mosa og Mola hans Rafns, sonar míns . 

 DSC00004 (1) Ying og Yang Gosi og Tító

                                        Tító og Gosi 

 Mér þykir  líka vænt um tré, sérstaklega fallega garðahlyninn sem stendur á horninu á  Suðurgötu og Vonarstræti í Reykjavík og sem var eitt sinn kosinn fegursta tré Reykjavíkur.
Þegar ég á leið framhjá trénu þá stoppa ég alltaf og heilsa upp á það. Geng að stofninun og horfi upp í tilkomumikla laufkrónuna.
Mér er nokk sama þó að fólk sem sér mig standa þarna fast við tréð með hausinn reigðan aftur á hnakka, haldi að ég sé kolkreisí eða eitthvað þaðan af verra. 

 Mér finnst líka ljós vornæturhimininn yndislegur, þegar sólin gyllir skýin yfir blánóttina.

DSC000323 Sólarlagsský

 Og ég gleðst alltaf jafnmikið þegar fyrstu túlípanarnir stinga upp kollinum í garðinum heima.

DSC00013 Blómabeð í garðinum heima

 Mér þykir líka vænt um rúmið mitt, þar sem gott er að hvíla lúin bein og kúra með þeim Tító og Gosa.

 DSC00015 Rúmið mitt

 Mér þykir vænt um tölvuna mína og finnst hún ómissandi. Ekki skemmir heldur útsýnið  út um gluggann í tölvuherberginu, á kvöldin.

DSC000311 Sólarlag

Svo elska ég að mála og teikna og svo margt, margt fleira. 

 

 

                         Uppstilling við sólarlag

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábærar myndir og yndislegt það sem þú elskar, ég held líka að þú elskir lífið !

Kærleikur til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.7.2008 kl. 06:01

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Kærleikur til þín, Steina, frá mér.

Svava frá Strandbergi , 19.7.2008 kl. 10:24

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegar myndir og margt til að gleðjast yfir, það er gott að koma auga á þessa hluti í daglegu lífi. Ég elska að hafa kynnst þér á netinu og fá að fylgjast með þér og kisunum.  Kveðja Love You

Ásdís Sigurðardóttir, 19.7.2008 kl. 12:59

4 Smámynd: Davíð S. Sigurðsson

æjj takk fyrir að minna mig á fallega tilveru :) kærleikur og þakkir!

Davíð S. Sigurðsson, 19.7.2008 kl. 14:07

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Kærleikskveðjur til ykkar, Ásdís og Davíð.

Svava frá Strandbergi , 19.7.2008 kl. 15:24

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl Svava mín.  Þakka kærleiksríkar kveðju til mín. Eitt hnaut ég um í þessari upptalningu þinn, að þú sem innfæddur Vestmannaeyingur gleymir feðra þinna fóstur ey og fæðingarstað þínum. Fegurð hennar og mikilfengs umhverfis þar sem forfeður okkar háðu lífsbaráttu sína.  Ég veit að þú Svava mín geymir okkar fögru Heimaey í hjarta þínu, ávallt. Þannig að ég held, að ég þurfi ekkert að minna þig á eitt né neitt.  En ekki veitir mér af öllum þeim kærleik sem ég fæ, sem frændi þinn. Hafðu þökk fyrir Svava mín.

Þorkell Sigurjónsson, 19.7.2008 kl. 17:26

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Mikið ógnarlega ertu heppin og rík kona, nafna mín. Þetta er virkilega til að bæta bjartsýnisstuðul manns og jákvæðnitilhneigingar. Takk, takk!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.7.2008 kl. 20:44

8 Smámynd: www.zordis.com

Zad er gott ad elska tilveruna og sjá ríkidaemi hennar eins og zú gerir!  Ég reyni ad temja mér ást á umhverfid og reyni ad njóta gnaegta heimsins.

Zad ad vera jákvaedur styrkir okkur.

www.zordis.com, 19.7.2008 kl. 23:20

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Keli minn, ekki gleymi ég Heimaey svo glatt, þó ekki hafi hún verið með í
þessari upptalningu minni.
Ég orti reyndar, eftirfarandi ljóð um Heimaey fyrir
mörgum árum og þá var það birt í Lesbók Morgunblaðsins og var einnig kosið ljóð dagsins á Ljóð.is



Heimaey


Bárunnar blúndukögur
skrýðir dimmbláa
klettaströnd
þar sem svarthvítir fuglar
sveima
við hljómþýðan söngleik
vindanna.

Í þverhníptu bergi óma
ótal vonglaðar raddir
vorsins sígrænu drauma.

Hugur minn horfir og saknar
er ung ég undi og unni,
í faðmi þér,
fagra eldborna eyja.



Gangi þér sem best, kæri frændi


Svava frá Strandbergi , 20.7.2008 kl. 13:43

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Nafna og Zordís.

Svava frá Strandbergi , 20.7.2008 kl. 13:46

11 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Mín kæra frænka.  Fyrst ætla ég að biðja þig að fyrirgefa mér þennan pistil minn hér að ofan allavega óverðskuldaða gagnrýni á þig um okkar heimaslóð.

Var mikið að hugsa um þessi skrif mín á göngu minni áðan og tjá þér hvað ég sæi eftir því.  En þú Svava mín hefur tekið því eins og góðri frænku sæmir.

Ljóðið er í einu orði sagt fallegt. Á eiginlega ekki nógu sterk lýsingarorð yfir hversu frábært ljóðið þitt er.  Kær kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 20.7.2008 kl. 14:25

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég elska aðeins sjálfan mig og finnst það andskotans alveg nóg! En Mali elskar allt og alla!

Sigurður Þór Guðjónsson, 20.7.2008 kl. 14:43

13 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Guðný, var að koma úr sveitinni og bauð Jens vin okkar í  mat og sýndi honum teikningarnar þínar hérna á vefnum, sem mér finnst heillandi og hann var sammála því að þær væru góðar. Ég hlakka mikið til að koma á sýninguna þína.

Sigurður Þórðarson, 21.7.2008 kl. 00:21

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hlakka til að sjá þig, Sigurður og vona að Jens komi líka.

Svava frá Strandbergi , 21.7.2008 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband