Leita í fréttum mbl.is

Ég er döpur í dag

Eftir að hafa fengið upphringingu frá lækni í gær, sem sagði að það væru blettir í öðru lunganu mínu. Ég vissi svo sem að eitthvað væri að. Ég hef verið svo mæðin og svitnað svo ofboðslega við minnstu áreynslu, að það hefur beinlínis lekið af mér í dropatali. Svo rýkur hitinn upp öðru hvoru, allt upp í 38,5 stig. Matarlystin hefur líka verið óvenju léleg og mér er annaðhvort allt of heitt eða of kalt.

Ég hef fengið 7 sinnum lungnabólgu á undanförnum 5 árum og þær héldu áfram að koma þrátt fyrir að ég hætti að reykja 10.október 2006, þegar ég hætti eftir að hafa verið lögð inn á spítala með súrefnismettun niður í 85 %, svo ég þurfti að fá súrefni á spítalanum.

Nú á ég að fá,  enn einn tvöfaldan sýklalyfjakúr  og viku eftir að ég lýk honum á að taka röntgen myndir aftur af lungunum. Og ef að blettirnir verða ekki farnir þá, þarf að senda mig í sneiðmyndatöku til þess að athuga hvort þetta geti verið eitthvað annað og verra.

'Ég er hrædd', sagði ég við lækninn minn sem hringdi í mig. 'Ja, ég get ekki tekið það frá þér', sagði hann bara'

Það er nú það, en ég ætla samt til Danmerkur með vinum mínum á aðfaranótt mánudags.Svo verður maður bara að vona það besta


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 23.5.2008 kl. 09:37

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrir rúmum þremur árum fékk ég ámóta fréttir. Læknavísindin tóku mig upp á arma sína og núna vakna ég brosandi á hverjum morgni.

Þér gengur líka vel.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.5.2008 kl. 09:52

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gangi þér vel mín kæra og reyndu að njóta utanlandsferðarinnar.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.5.2008 kl. 12:38

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, Hólmdís, Heimir og Ásdís

Svava frá Strandbergi , 23.5.2008 kl. 13:22

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi elskan knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 23.5.2008 kl. 17:20

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús til baka Katla mín

Svava frá Strandbergi , 23.5.2008 kl. 17:31

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Góðan bata, góða heilsu og góða ferð, kæra Guðný Svava..

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 23.5.2008 kl. 22:04

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, kæra nafna. Ég er viss um að þetta er bara ein af mínum venjulegu lungnabólgum, sem er að mér og ekkert annað!!

Svava frá Strandbergi , 23.5.2008 kl. 23:54

9 Smámynd: www.zordis.com

Leitt að heyra en vonandi fer allt vel og NJÓTTU danmerkurferðarinnar og svo tekur þú á heilsunni þegar heim er komið á ný!

Ég sendi þér línu fljótlega !!

www.zordis.com, 25.5.2008 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband