Leita í fréttum mbl.is

Opnunin á sýningunni minni, fjöldi boðskorta komst ekki í tæka tíð

Það var gaman á opnuninni á sýningunni minni. Skemmtilegt að hitta gamla bloggvini og fleira mektarfólk. En ég skildi ekkert í því hve það kom fátt fólk. Á síðustu einkasýningu minni var fullt út úr dyrum og ég seldi grimmt á opnuninni þá. Ég seldi að vísu eina mynd núna á þessari opnun sem er ágætt miðað við það hversu fáir mættu.

En ég fékk skýringu á þessari mannfæð, í dag. Ég hringdi í nokkra vini mína, sem ég hafði sent boðskort og þeim hafði ekki  borist kortið fyrr en seinnipartinn á mánudag. Svo það hafa eflaust margir aðrir sem ég sendi boðskort ekki heldur fengið það í tæka tíð. Svo frétti ég að sumir sem ég hafði sent kort hefðu verið erlendis eða úti á landi í einhverjum erindagjörðum. 

Ég er dáldið spæld yfir að hafa ekki farið með boðskortin fyrr í póst því þá hefðu fleiri mætt á opnunina. En sýningin verður nú opin til 15. maí svo ekki er öll nótt úti enn. Síðan verður sýningin flutt á Thorwaldsen bar seinna í sumar. 

Þið getið séð meira um sýninguna mína á Art-Iceland.com  Ef þið klikkið á íslenska fánann efst til hægri  á síðunni og klikkið síðan á linkinn 'Listalíf.'

Annars er allt ágætt að frétta hjá mér. Ég kíkti á síðuna mína á Ljóð.is og sá þá að ljóð eftir mig, sem heitir 'Flókaský'  er ljóð dagsins í dag, þriðjudag 22.apríl  En ég var síðast með ljóð dagsins þann 19. apríl og er það mjög 'fíflalegt' ljóð. Ég held að ég sé komin með ein 33 eða 34  ljóð sem hafa verið kosin ljóð dagsins á Ljóð.is. Mig langar til að gefa þessi ljóð mín einhvern tímann út í ljóðabók og myndskreyta þau.

 

Ljóð dagsin í dag á Ljóð.is

 

    Flókaský

Fyrir augum mér flækist

grátt flókaský.

Svo ég sé andskotann ekkert

út úr því.

 

Guðný Svava Strandberg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þar kom skýringin á þessari manneklu en þessar myndir sem þú varst að spyrja um duttu óvart inn á bloggið. Ég var að prófa skannann. Bláa myndin er t.d. bara sýnileg til hálfs vegna þess að skanninn er bara fyrir A4 en bláa er A3. Nú fer ég bara að einbeita mér að A4 myndum.

Diddi (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 09:37

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jess, Dr. Jekyll þar kom skýringin. En afhverju færðu þér ekki myndavél sem þú getur tengt við tölvuna?
Þá geturðu bara tekið ljósmyndir af stærðarinnar myndum og sett inn á bloggsíðuna þína. 
Þetta voru helvíti flottar myndir hjá þér,  þó þær væru bara hálfar, en gerðirðu þær með olíu eða vatnslitum?

Svava frá Strandbergi , 22.4.2008 kl. 09:43

3 Smámynd: www.zordis.com

Mikið hefði ég viljað koma og sjá hjá þér.  Ég ætla að koma bara í heimsókn til þín í sumar og hitta þig. Hlakka til þess og sýningarinnar okkar.

Æðislegt ljoð!

www.zordis.com, 22.4.2008 kl. 16:40

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég reyni að koma Guðný mín og til hamingju með sýninguna og ljóðið

Kristín Katla Árnadóttir, 22.4.2008 kl. 17:21

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það var yndislegt að skoða sýninguna þína og gaman að koma á opnuina.  Gangi þér vel.  Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 19:48

6 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Til hamingju með sýningu og kærar þakkir fyrir boð en eins og líklegt var komst ég því miður ekki. Mikils metið samt sem áður. Kannski fer ég suður áður en sýningin klárast.

Bestu kveðjur

Ragnar Bjarnason, 22.4.2008 kl. 22:50

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Hlakka til að hitta þig í sumar Zordís.

Þakka ykkur öllum fyrir. 

Svava frá Strandbergi , 22.4.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband