Leita í fréttum mbl.is

Myndlistarsýningin

DSCF2 Í djúpinu númer 1

 Stúlkan í græna kjólnum 1

 Ísilagt vatnið nr 1

Kæru bloggvinir, velkomnir á opnun sýningar minnar í Bistro & Bar, Geysishúsinu Aðalstræti 2 Reykjavík, sunnudaginn 20. apríl frá klukkan 15.30 til 17.00.

Sýningin er opin til og með 15. maí og eru allir hjartanlega velkomnir.

Guðný Svava. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Fallegar myndir.

Bryndís Böðvarsdóttir, 18.4.2008 kl. 19:05

2 Smámynd: www.zordis.com

Til hamingju með sýninguna sem opnar um helgina!

Hreint frábært, ég óska þér velgengni og vonast til að sjá myndir af sýningunni þinni sem ber svo fallegt nafn!

Eldur, ís og ævintýri ....

www.zordis.com, 18.4.2008 kl. 19:39

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir boðið, ég mæti.  Æðislegar myndir. 

Ásdís Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 19:42

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka ykkur fyrir.

Svava frá Strandbergi , 18.4.2008 kl. 23:58

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Til hamingju með sýninguna. Ég mæti

Marta B Helgadóttir, 19.4.2008 kl. 00:33

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þetta verð ég að sjá. Takk fyrir boðið Guðný Svava. Ég kemst því miður ekki á sunnudaginn þar sem ég sest upp í flugvél þann dag en ég kem seinna.

Jóna Á. Gísladóttir, 19.4.2008 kl. 06:45

7 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl og blessuð mín kæra frænka. Þakka þér boðskortið á sýninguna þína. Reikna með að ég mæti ekki nema eitthvað óvænt gerist. Vonast til að þetta gangi vel hjá þér Svava mín.  Þessi mynd þín,  "Í djúpinu" finnst mér mjög áhugaverð.  Læt vita af mér ef ég verð áferðinni.  Dóttirin var víst svo upptekin eftir að eiginmaðurinn kom til móts við hana þennan stutta tíma sem hún var í Rvík. að það varð ekkert úr, að hún kæmi í heimsókn til þín.  Var mjög ósáttur við stelpuna.  En, bið að heilsa í bili.      

Þorkell Sigurjónsson, 19.4.2008 kl. 08:11

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég þakka fyrir mig Guðný mín ég mun reyna að koma.

Kristín Katla Árnadóttir, 19.4.2008 kl. 09:40

9 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Til hamingju Guðný Svava. Hlakka til að koma, ef ég kemst ekki á morgun, þá kem ég allavega í vikunni.

Yndislega myndir, þessi efsta er algjör snilld!! 

Bestu kveðjur

Ragnhildur Jónsdóttir, 19.4.2008 kl. 11:50

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Frábært framtak hjá þér. Ætla endilega að kíkja á þig.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.4.2008 kl. 13:05

11 Smámynd: Toshiki Toma

Sæl, Guðný Svava.
Til hamingju með sýningu þína. Mig langar að fara í opnun hennar á sunnudaginn, en ég er með þvagsýrugigt á báða fætur og get ekki
labbað í raun.
En ég óska þér til haminghu og velgengni í sýniningunni!

Toshiki Toma, 19.4.2008 kl. 13:51

12 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þakka ykkur fyrir. Hlakka til að sjá ykkur, sem komist á opnunina. Ég veit ekki hvort ég hitti á ykkur hin sem mætið seinna, þar sem ég vakta ekki sýninguna. En ég gæti kannski verið á staðnum og fengið mér kaffi með ykkur, ef þið viiljið og þið látið mig vita hvernær þið getið farið.

Góða ferð Jóna. 

Keli, það er svona þetta unga fólk. Kannski hefur hún líka verið  feimin vð  heimsækjja einhverja gamla frænku sem hún þekkir ekki neitt. Auðvitað hefur hún frekar viljað eyða tímanum hér í Reykjavík með eiginmanninum. Ég skil það vel. Er hún lík Siggu sálugu frænku sinni, sem hún heitir í höfuðið á?

Bestu kveðjur til þín líka, Ragnhildur.

Þakka þér fyrir Toshiki.

Ég vona að þér batni þvagsýrugigtin. Ég hef heyrt að hún sé mjög kvalafull. Ég fékk sýkingu í stórutá fyrir nokkrum mánuðum, táin varð eldrauð, fóturinn bólgnaði upp og ég var hölt og ég þoldi ekki einu sinni að sængin mín kæmi við tána.

Ég fór á bráðavaktina og læknarnir héldu fyrst  eins og ég að þetta væri þvagsýrugigt, en svo var ekki, heldur var þetta alvarleg sýking og ég fékk sex sinnum sýklalyf í æð og eftir það var ég send heim með heilan pakka af meiri sýklalyfjum.

Svava frá Strandbergi , 19.4.2008 kl. 20:00

13 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæl Svava mín.  Ekki get ég neitað því að þær frænkur séu líkar í raun og sann, að mínu mati.

Annars sérðu mynd af henni ef þú ferð inná bloggsíðuna mína. Er kominn með myndaalbúm á síðuna.  Segðu mér svo hvað þér finnst, hvort  svipur sé með þeim frænkum?  Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 19.4.2008 kl. 21:09

14 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég er búin að skoða albúmið þitt Keli með fjölskyldumyndunum. Þetta eru falleg börn og barnabörn sem þú átt, en mér finnst Anna Guðrún dótturdóttir þín líkari Siggu sálugu heldur en mamma hennar.

Svava frá Strandbergi , 20.4.2008 kl. 10:26

15 Smámynd: Gúrúinn

Ég þakka boðið en á því miður ekki heimangengt í dag. Mun kíkja á sýninguna seinna. Og til hamingju með hana!

Gúrúinn, 20.4.2008 kl. 13:28

16 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

TIl hamingju með sýninguna þína Guðný Svava. Yndisleg sýning! Og virkilega gaman að hitta þig "í alvörunni"

Takk fyrir mig

Ragnhildur Jónsdóttir, 20.4.2008 kl. 17:42

17 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Takk fyrir mig í dag Guðný Svava, það var gaman að koma og hitta ykkur systkinin og sjá myndirnar þínar svona live

Marta B Helgadóttir, 20.4.2008 kl. 23:24

18 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Gúrú.

Já, það var reglulega gaman að hitta ykkur í dag, Ragnhildur og Marta. takk fyrir að koma.

Svava frá Strandbergi , 21.4.2008 kl. 00:08

19 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Flott sýning og frábært hús til að sýna í...takk fyrir mig

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.4.2008 kl. 18:36

20 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk fyrir að koma Katrín. Það var reglulega gaman að hitta þig og líka Ásdísi og Ragnhildi.

Svava frá Strandbergi , 22.4.2008 kl. 03:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband