Leita í fréttum mbl.is

Vinir. Uppstilling í sandstormi

 DSC00017 Uppstilling í sandstormi

Sannir vinir eru þeir sem halda ekki þegar þú hefur orðið þér til skammar, að þú hafir gert það í eitt skipti fyrir öll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Nákvæmlega. Sannir vinir vita bæði vamm þitt og vænleika og vita að þú hefur ekki breytt um persónuleika og orðið að ófreskju þó þú hafir orðið þér til svokallaðrar "skammar" ellegar farið fram úr sjálfri þér. Kjarninn er óhreyfður.   Þessi mynd er yndisleg.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 30.3.2008 kl. 10:01

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, nafna.

Svava frá Strandbergi , 30.3.2008 kl. 16:14

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Það væri nú ansi hart ef maður þyrfti að vera fullkominn og "til-skammar-laus" alla daga, legg ekki í það sko.

Frábær myndin, svo fallegir og glaðir litir. Manni finnst þetta líka allt saman vera vinir sem þarna standa saman í tilverunni.

Ragnhildur Jónsdóttir, 30.3.2008 kl. 19:05

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk, Ragnhildur,Nei, ég legg ekki í það heldur,  að verða mér aldrei til skammar.

Svava frá Strandbergi , 31.3.2008 kl. 01:02

5 identicon

Það eru akkúrat svona myndir sem ég fíla og ekki orð um það meir.

Diddi (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 05:13

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Kærar þakkir Dr. Jekyll.

Svava frá Strandbergi , 31.3.2008 kl. 08:21

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þú átt undirstöðuna í þessari mynd Dr. Jekyll. Þú byrjaðir í tíma hjá mér að mála ttéplankagólf í fjarvídd með vatnslitum, en hentir svo myndinni.
Ég hirti hana og bleytti hana upp aftur og aftur og málaði þessa uppstillingu ofan í grunninn þinn. það tók langan tíma þar til  ég var ánægð.

En nú er mér farið að lengja eftir meistaraverkunum þínum á síðunni þinni.

Svava frá Strandbergi , 31.3.2008 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband