Leita í fréttum mbl.is

Alla leið upp til Guðs!

Sonur minn var sendur einn með flugvél frá Vestmannaeyjum til

Reykjavíkur þegar hann var lítill drengur. Langamma hans, sem tók á

móti honum á áfangastað, spurði hann hvort flugvélin hefði ekki farið

voða hátt upp í loftið.  'Jú, alveg uppí himininn,' svaraði drengurinn

rogginn.

'Sástu Guð? Spurði langamman. Drengurinn játti því, ákaflega upp með

sér.

'Og talaðirðu við Hann? Spurði, gamla konan.

'Nei, flugvélin stoppaði ekki'. svaraði sá stutti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndisleg saga, auðvitað skrökvaði hann ekki að ömmu sinni.  Kveðja til þín mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.2.2008 kl. 12:25

2 Smámynd: www.zordis.com

Sæt saga!   Þekki svipaða sögu ..... þessar dúllur eru yndislegar!!!  Knús á þig kæra!

www.zordis.com, 16.2.2008 kl. 13:14

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 16.2.2008 kl. 14:28

4 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Frábær saga og skemmtilega skondið svar hjá litla frænda ( litla! ). Hafðu það sem best Svava mín.

Þorkell Sigurjónsson, 16.2.2008 kl. 15:37

5 Smámynd: halkatla

það munaði þannig séð mjóu þarna að þú sætir uppi með spámann eða eitthvað  ótrúlega krúttuleg saga.

halkatla, 17.2.2008 kl. 14:58

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það liggur nú við að sonur minn sé hálfgerður spámaður Anna Karen, því hann er mjög trúaður og meira að segja 'frelsaður' og hefur verið það í tugi ára.

Hann biður t.d. alltaf borðbæn með konu sinnu og litlu krökkunum sínum þremur . 

Svava frá Strandbergi , 19.2.2008 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband