Leita í fréttum mbl.is

Uss, ég er fyrir löngu síðan....

búin að skrifa mína minningargrein. Best að hafa vaðið fyrir neðan sig þó að maður sé ekki frægur eins og Britney.  Það er líka handhægt fyrir ættingjana að ég sé hafi drifið í þessu sjálf og þannig get ég  líka verið viss um að aðalminningargreinin verði ekki full af einhverri bölvaðri vitleysu, eins og t.d.
'Hún bjó manni sínum fagurt heimili ' Eða þá. 'Henni féll aldrei verk úr hendi.'
Ég sem tilkynnti mínum fyrrverandi það,  um leið og við kynntumst,  að ég ætlaði mér það ekki að ævistarfi,  að verða húsmóðir.
Enda þótt ég hafi verið neydd út í það, því hann var aldrei heima, alltaf að  burðast við að vinna einhvern andskotann, úti á landi. Svo þegar hann kom í bæinn var eins og það væru komin jól og jólasveinninn væri sestur upp á heimilinu í tvo daga til þess að láta stjana í kringum sig.  Börnin alveg bandbrjáluð úr spenningi og allt heimilið á háa Céinu.
Fussum svei og ég sem hafði verið svo undurfögur skosk aðalsmær í fyrra lífi, einhvers staðar í Hálöndunum. Auðvitað sprakk allt heila klabbið með miklum hvelli í háa loft, enda ekki við öðru að búast þegar ung og fögur greifynja og stígvélaþræll hennar taka saman.
Já, minningargreinin mín verður bara hrein og bein skýrsla um mína einstöku ævi og ekkert nema skraufþurrar staðreyndir. Ekkert, 'Allt eins og blómstrið eina', þar, eða svoleiðis sko.


mbl.is Minningargreinin um Britney tilbúin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Jæja ég er svo gáttuð bara tilbúin með minningagreinina ég get ekki annað en brosað af þessu.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.1.2008 kl. 18:35

2 Smámynd: www.zordis.com

Þú orðar þetta mjög svo fínt fagra skoska mær!  Það er vissulega dignitý yfir þessu og það er alls ekki vitlaust að láta blákaldar staðreyndir flakka.  Gera tímamótadíl við Moggann og skrifa sína eigin.

www.zordis.com, 21.1.2008 kl. 21:55

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég þoli ekki svona hangs! Viltu þá bara ekki fara að ljúka  þessu af svo við fáum að sjá minningargreinina.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.1.2008 kl. 00:13

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Stígvélaþrælar hennar hátignar hafa auðvitað ekkert munað hvaðan þeir voru að koma og misskilið illilega stöðu sína.

Minningagreinar ættu auðvitað ehelst að vera skrifaðar af manni sjálfum svo allt megi þar vera satt og rétt eftir haft..hehe.

Knús á þig skemmtilega kona. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2008 kl. 15:36

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta fer nú að styttast Nimbus minn. En ég ætla að láta jarða mig á tveim stöðum, það er að segja annan helminginn hér í Reykjavík og hinn helminginn í Vestmannaeyjum.
Þetta er ekkert mál, ef maður lætur brenna sig og ég spurði að því hvort þetta væri löglegt og það er það.
Svo verður þú að mæta á báða staðina, hohohoho!! Annars geng ég aftur.

Stort knus til jer alle sammen.

Svava frá Strandbergi , 22.1.2008 kl. 17:55

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ þú ert frábær.  Elskan hún mamma mín var sko tilbúin með allt þegar hún fór.  Söngur og fleira var allt að hennar eigin ósk og hún vildi stutta ræðu, ekkert smjaður og svo mikinn og góðan söng. Henni varð að ósk sinni og jarðarförin var góð.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.1.2008 kl. 19:26

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Samhryggist þér með hana mömmu þína, Ásdís mín. Það var svo yndislega falleg myndin þín af höndunum hennar.

Svava frá Strandbergi , 22.1.2008 kl. 19:51

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já, Hallgerður, ég er fædd ásamt yngri systkinum mínum að Strandbergi við Strandgötu, en langafi minn byggð Landakot og afi minn í móðurætt Fagurhól.

Móðurafi minn drukknaði síðan frá konu og börnum, aðeins 29 ára að aldri og amma stóð ein uppi með fjögur ung börn og flutti þá til Ögmundar föður síns heim í Landakot. Ert þú fædd í Eyjum? 

Svava frá Strandbergi , 22.1.2008 kl. 22:59

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Strandberg og Strand eru svolítið fyndin nöfn sem allir stranda á.

Svava frá Strandbergi , 23.1.2008 kl. 15:31

10 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Akkúrat, Hallgerður, enda Eyjablóð í báðum.

Svava frá Strandbergi , 23.1.2008 kl. 19:29

11 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Landakot brann aldrei. Ég kom inn í það fyrir nokkrum árum og þá sást greinilega hvernig byggt hafði verið við gamla Landakot, bæði inni og úti. Ég á myndir af Landakoti sem ég tók þá.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.1.2008 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband