Leita í fréttum mbl.is

Það er verið að spila með tilfinningar okkar svipað og gert var með hundinn Lúkas

Er þessi hundur lifandi hákarlabeita?

 

120882

http://www.thepetitionsite.com/1/stop-dogs-being-used-as-shark-bait
Þetta er slóðin sem fylgdi þessari hryllilegu mynd sem ég sá á blogginu hennar Ásdísar bloggvinkonu.

Myndin er eins og þið sjáið af hundi sem virðist vera búið að festa stóran hákarlaöngul í, rétt fyrir ofan trýnið og í gegnum framhluta höfuðsins.
Fullyrt var á slóð þessari að lifandi óskila hundar væru notaðir sem hákarlabeitur og fólk beðið að setja undirskrift sína gegn þessarri óhæfu á þar til búinn reit á slóðinni.
Mér varð svo mikið um að sjá þessa mynd að ég komst við og var næstum búin að kasta upp. Um kvöldið gat ég ekki sofnað , fyrr en ég hafði beðið oft og lengi  til Guðs um að hann líknaði öllum þeim dýrum sem mennirnir væru svona grimmir við.
En svo benti dóttir mín mér á það í dag þegar ég sagði henni frá þessu, að þetta væri aðeins brella. Myndin væri örugglega photoshoppuð. Sagði hún mér líka að hún hefði fengið tölvupóst þar sem sagt var frá svokölluðum 'Bonzai kettlingum.' Væru litlir kettlingar settir í flöskur sem væru með opi í báðum endum svo hægt væri að næra þá og svo að úrgangur kæmist frá þeim. Kettlingarnir gætu auðvitað ekki vaxið eðlilega, þeir yrðu afmyndaðir í vexti eins og flaskan. Þetta var líka gabb sagði hún.
Ég skoðaði betur myndina af hundinum með krókinn í gegnum trýnið. Mér fannst það undarlegt að hundurinn var ekki einu sinni með múl og virtist ekkert berjast á móti þessarri kvalafullu meðferð með því að reyna að bíta manninn. Einnig var maðurinn sem hélt hundinum að því er ég best gat séð í grænum skurðlæknaslopp
Ennfremur var hundurinn ekki óskila hundur, því þegar betur er að gáð sést að hann er með ól um hálsinn.
Hvað gengur þeim til sem búa til svona fréttir, mér er stór spurn?  Svarið virðist vera augljóst, það er eins og með hundinn Lúkas sem hefur verið mikið talað um í fjölmiðlum, að ganga fram af fólki og hafa tilfinningar þess að leiksoppi með skipulagðum hætti.  Hafa mann hreinlega að fífli og víla ekki fyrir sér að hafa þó nokkuð fyrir þessu vítaverða athæfi. Ég á ekkert prenthæft orð um hvað mér finnst um svona hegðun.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

þetta er náttúrulega ekkert fyndið nema fyrir þann sem gleðst yfir lygum og óhugnaði - það væri alltílagi ef allir fengju að vera með í gríninu en þarna er fólk að leggja sig fram við gabb til þess eins að geta svo hlegið að samúð annars fólks. En nóg er víst af dýrum og fólki sem þarf að biðja fyrir, þó að þetta hafi verið "grín"

halkatla, 21.7.2007 kl. 01:42

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Þessi hundur er labrador pointer, eins og bróðir minn á, mjög gæfir og skemmtilegir hundar.  Nei svona fréttir eru ljótar gerðar til að skapa óhug, eins og heimurinn sé ekki nógur ljótur fyrir, þó menn fari ekki að bæta á það.

Ester Sveinbjarnardóttir, 21.7.2007 kl. 02:08

3 Smámynd: www.zordis.com

Sick joke!

Fólki hlýtur ad leidast mjög ad standa í svona gedsjúku gríni.  Baenin zín hefur skilad sér á rétta stadi zví zad er nóg til ad dýrum og fólk sem zarf á styrk baenarinnar.

Góda helgi vinkona!

www.zordis.com, 21.7.2007 kl. 08:39

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ Guðný.  Ég var einmitt komin á þessa skoðun, en þegar ég sá þetta upphaflega brá mér svo hrikalega, varð eiginlega alveg illt. Já, maður spyr sig, hvernig fólk geti gert svona, grimmar sálir þar að verk. Kveðja til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2007 kl. 13:39

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Fólk á ekert að gefa svona síðun gaum einu sinni. Allra síst skrifa nafnið sitt og jafnvel ímeil eitthvað út í bláinn.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.7.2007 kl. 13:53

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Veistu Guðný mér brá að lesa þetta þetta er algjör viðbjóður hvernig er farið með Dýrinn ef fólki sem finnst þetta fyndið þá er eitthvað mikið að

Kristín Katla Árnadóttir, 21.7.2007 kl. 18:31

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

frekar svona sick húmor.

Jóna Á. Gísladóttir, 23.7.2007 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband