Leita í fréttum mbl.is

Fáránleg lög í Ameríku

Ég rakst á gamalt eintak af Úrvali, tímariti fyrir alla sem nú er hćtt ađ gefa út. Í blađinu gat međal annars ađ líta eftirfarandi lög í Ameríku, en ekki veit ég hvort ţau eru ennţá í gildi.

Í Indíana má athuga alkóhólinnihald í andardrćtti  bílstjóra gegn vilja hans vegna svohljóđandi laga
: 'Eftir ađ andardrátturinn yfirgefur líkamann hćttir hann ađ vera eign ţess sem hann kom frá.'

 Í Louisiana gilda sérstök lög sem leyfa ađ hver og einn megi verđa eins hávaxinn og hann vill. 

Ţađ er ólöglegt ađ synda á ţurru landi í Santa Ana í Kaliforníu. 

Hundum er bannađ međ lögum ađ gelta eftir sex á kvöldin í Little Rock í Arkansas.

Ţađ er bannađ međ lögum: ađ raka sig ađ degi til í Popular Blull í Missouri,

- ađ bera sápu á járnbrautarteina í Missisippi,

- ađ fara međ svín inn í opinberar byggingar í st. Paul í Minnesota, 

- ađ vera međ ís í formi í vösunum í Lexington í Kentucky, 

- ađ tala hátt í lautarferđum í Pennsylvaníu, 

- ađ ríđa kameldýrum á ţjóđvegum í Nevada, 

- ađ leggja gólfteppi á torginu í Savannah í Georgíu, 

- ađ trufla manneskju međ ţví ađ hringja dyrabjöllu í New York, 

- í Los Angeles er barţjónum bannađ ađ gefa viđskiptavinum sínum gćludýr, 

- í Massachusetts er bannađ  ađ innheimta skuld, íklćddur grímubúningi.

 Hundum og köttum er bannađ međ lögum ađ slást í Barber í Norđur - Karólínu. 

 Í Sterling í Colorado verđa kettir ađ vera međ afturljós til ađ mega ganga lausir.

  Ţađ er óleyfilegt ađ stofna til hnefaleika viđ naut í Washington D. C.

 Lögum samkvćmt er óheimilt ađ láta bíla líkjast úlfum í Macomb í Illinois. 

 Samkvćmt lögum í Norfolk í Virginíu mega hćnur ekki verpa fyrir klukkan átta á morgnana eđa eftir fjögur síđdegis. 

 Ţađ má ekki selja giftum manni áfengi án skriflegs leyfis eiginkonu hans í Cold Springs í Pennsylvaníu.

 

Í lokin:

Eiginmađurinn situr og  starir  á  konu sína. Hún  horfir á móti  ekkert  alltof hrifin.
' Ég vona ađ ţú sitjir ekki og hugsir um hvađ ég sé ađ hugsa ţví mig langar virkilega ekkert  til ađ segja ţér ađ ég sat einmitt og hugsađi hvađ í veröldinni ég ćtti ađ segja, ef ţú spyrđir . 'Hvađ ertu ađ hugsa?'


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Hún Ameríka er stórkostleg!  Ţađ ţćtti saga til nćsta bćjar ađ ţurfa ađ mćta međ skriflegt leyfir til ađ ná sér í einn fleyg. 

Ćtli konur spyrji bara, hvađ ertu ađ hugsa?   koss á báđar!

www.zordis.com, 19.7.2007 kl. 09:06

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ţađ er allt svo skrítiđ í USA.

Kristín Katla Árnadóttir, 19.7.2007 kl. 10:34

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband