Leita í fréttum mbl.is

'Eins og brenndur snúður heim'?

Ég sit hérna við tölvuna við hliðina á galopnum vesturglugganum og glápi á sólarlagið með öðru auganu meðan ég blogga. Kettirnir mínir, Tító og Gosi hanga hálfir út um gluggann og glápa líka, ekki þó á sólarlagið, þeir eru ekki svo rómantískir kattarforsmánirnar, nei þeir hafa meiri áhuga á biðurkollufræjunum sem fjúka framhjá glugganum.
Tító hefur þó varan á sér, minnugur máva árásarinnar fyrir nokkrum dögum,  því það situr vígalegur mávur á næsta ljósastaur. Þessi mávur dirfðist líka að hringsóla gargandi yfir mér úti í garði áðan,  en settist  svo á ljósastaurinn rétt hjá mér.
Ég var eiginlega hálfhrædd við hann og datt í hug í alvöru hvort hann myndi kannski leggja í  það að ráðast á mig?  Hann hafði nú ekki hugrekki til þess, enda eins gott fyrir hann því þó ég væri hrædd við hann, ætlaði ég að verjast í lengstu lög og hefna harma Títós líka.

Já, ég er nýkomin utan úr garði, var að vökva blómaræksnin eftir þennan sólríka dag. Mér finnst ansi heitt úti en þó er heitara en í Helvíti,  þar sem leið mín liggur eftir fáeina daga. Ég sá það á netinu í morgun að þarna við Miðjarðarhafið á Krít, nálægt Chania, sem er áfangastaðurinn er 42 stiga hiti! 

Það er nebbnilega það! Ég hef einu sinni verið í 43 stiga hita í Californiu fyrir þrjátíu árum, þegar ég var ung og fær í flestan sjó, en ég lagðist samt í rúmið  þá, ásamt tveggja ára syni mínum sem steyptist allur út í eldrauðum hitabólum.  Vegna þessarrar slæmu reynslu minnar aftur í grárri forneskju fékk ég náttúrulega hálfgert móðursýkiskast yfir því að ætla nú að ferðast í annan álíka suðupott á Krít og það þrjátíu árum eldri og hrumari, en þegar ég ung og hraust eins og fyrr segir, lenti í hitabylgjunni í USA .
Ég myndi örugglega ekki sleppa svona billega í þetta sinn, að þurfa bara að leggjast í rúmið. Nei ég var sjúr á því ég myndi þurfa að liggja í kistu, eftir örstutta dvöl á hinni sólríku Krít, sem sótsvart kolbrunnið lík, tilbúin til þess að láta skutla mér heim oní svala og kælandi moldina heima á Fróni.

Í þessum svartýnis hugleiðingum hringdi ég í bróður minn og sagði honum mínar farir ekki sléttar, en hann hló bara góðlátlega að mér. Sagði að hann hefði það eftir sínum öruggu heimildum að veðrið yrði komið niður í þægileg 32 stig þegar ég væri komin á áfangastað. 

Svo ég er öllu rórri þó ég sé flughrædd líka og því verður stefnan tekin á Krít á fljúgandi 'fullri' ferð. 

 


   

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Sigurjónsson

það er ansi heitt við miðjarðarhafið þessa dagana, vonandi verður svalara þegar þú kemur í hlaðvarpan á Krít.

Jens Sigurjónsson, 26.6.2007 kl. 01:26

2 Smámynd: Agný

OHHH ég sem elska sól og hita og þoli bæði vildi sko gjarnan skifta við þig og fara þarna....... En það yrði sko að vera frítt því ég finn ekki peningatréð ennþá. Kanski ég sé of neikvæð...en var búin að senda alveg og hugsa allt jákvætt í sambandi við afmælið mitt..sem er alveg á næstu grösum... meira að segja búin að búa til rétta slagorðið....  Jæja..slagorðið mega þá aðrir fá seinna..... En skemmtu þér vel og hugsaðu til mín þegar þú ert að stikna

Agný, 26.6.2007 kl. 02:10

3 Smámynd: Agný

Ég ætlaði nefnilega að vera í útlöndum núna og í tvær vikur..... en hér sit ég og get ekki betur....

Agný, 26.6.2007 kl. 02:12

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Jens og til hamingju með væntanlegt afmæli Agný.

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 02:49

5 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Þetta verður frábært frí, og þú verður bara enn sælli og glaðari yfir því vegna þess að þú sleppur við þennan mikla hita. 

Ester Sveinbjarnardóttir, 26.6.2007 kl. 08:18

6 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég fer á laugardaginn Arna. Afsakið öll hvað ég hef verið léleg að kommment a hjá ykkur undanfarið, ég hef bara verið svo busy.

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 09:38

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég lendi í svona hitabylgju líka í USA þetta var hræðilegt ég man að kastaði upp en vonandi verður ekki svona heitt þegar þú verð þangað skemmtu þér vel.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.6.2007 kl. 09:40

8 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Takk Kristín mín.

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 09:43

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Jú, það væri upplagt Guðmundur að kaupa mávastellið handa Tító, en ætli það fáist ennþá?

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 14:54

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Iss við förum létt með þetta! Þessi hiti vogar sér ekki að þvælast fyrir okkur

Heiða B. Heiðars, 26.6.2007 kl. 14:58

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já Heiða við þurfum bara að útvega okkur viftur sem eru þannig útbúnar að þær eru festar með stöng við gjörð sem við spennum efst utan um hausinn á okkur  Svona hausvifta myndi náttúrulega kæla okkur alveg niður úr öllu valdi.  

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 15:21

12 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég er með enn betri hugmynd! Ætla að finna mér sætan mann... grískan guð, til að elta mig um allt veifandi fjöðrum

Heiða B. Heiðars, 26.6.2007 kl. 15:30

13 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já það er satt, ég var alveg búin að gleyma því!  Ég ætlaði líka að finna mér sætan mann, grískan að sjálfsögðu. Veit ekki hvort ég hef sjens í einhvern guðinn, en sendiboði guðanna Hermes gæti orðið góður kostur. Hann myndi kannski taka mig með í smáútsýnisflug og kæla mig niður í leiðinni uppi í háloftunum. Þá myndi ég aldeilis verða hátt uppi og líta niður á ykkur hin, haha!.

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 16:08

14 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.6.2007 kl. 16:43

15 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég hvað?

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 16:46

16 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég var að skoða nýjustu spá og nú er gjört ráð fyrir 60 stiga hita á Krít einmitt þegar þú verður þar. Jarðvísindamenn eiga líka von á ógnarskjálfta upp á 8,9 á Richter á næstunni og svo er víst yfirvofandi gos á Santorini en þar varð einmitt eldgosið mikla sem lagði elstu Krítarmenninguna í rústir. Það er alltaf gaman að taka þátt í sögulegum stórtíðindum hvort sem maður er nú dauður eða lifandi eða jafnvel lifandi dauður. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.6.2007 kl. 16:47

17 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Okey! þá hraðsteikjumst við bara í góða veðrinu, eða þá að jörðin gleypir okkur lifandi í jarðskjálftanum. En mér finnst þriðji og síðasti kosturinn skástur að við gröfumst í fyrirvaralausu, baneitruðu öskugosi frá Santorini. Svona svipað og gerðist í, (æ ég man ekki hvað  í andsk.. það heitir í augnablikinu) Við verðum svo grafin upp sem steingerðar múmíur okkar eftir nokkur þúsund ár. Þá verður maður allavega heimsfrægur þó seint sé. Við verðum þá líklegast öll með göt á rassgatinu, eins og múmían margrómaða í British Museum.    

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 17:12

18 Smámynd: www.zordis.com

Hva, er bloggvinaferd til Krít ?  Zad verdur alldeilils fjör hjá  ykkur.  Bid ad heilsa Krítarkonunni.

www.zordis.com, 26.6.2007 kl. 18:37

19 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða skemmtun Guðný mín, þetta verður örugglega frábært og ég skil þetta með hitann, of mikið er ekki fyrir mig heldur. Hvar verða kisurnar? Besu kveðjur þín verður saknað, kannski geturður bloggað á Krít.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2007 kl. 20:10

20 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Já zordís, við erum þrjú frækin að fara til Krítar. Skila kveðjunni frá þér.

Ásdís, takk,  sonur minn ætlar að koma tvisvar á dag til þess að hugsa um kisurnar, svo þarf ég að kenna honum hvernig hann á að vökva alla blómaflóruna á sólsvölunum, ef hann þá nennir því. Nei ég get ekki bloggað á Krít held ég, er ekki með fartölvu.

Svava frá Strandbergi , 26.6.2007 kl. 21:52

21 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

LOL

gerður rósa gunnarsdóttir, 26.6.2007 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband