Leita í fréttum mbl.is

Hún dáist að umbúðunum en hirðir ekki um innihaldið

Þetta er nú meiri yfirborðsmennskan Jennifer Lopes dáist mjög að stíl og tískuskyni Viktoríu Beckham en minnist ekki einu orði á útlit hennar að öðru leyti.  GetLost


 Hvað þá það sem undir býr eða sálartetrið eins og mannkosti eða hvort hún hafi eitthvert vit inni í sínum 'hárlengda-kolli', en slíkt skiptir víst minnstu máli hvort eð er hjá 'stjörnunum.' í Hollywood.
þessi orð Jennifer´s  segja annars allt sem segja þarf um útlitsdýrkunina sem tröllríður ekki bara Hollywood heldur einnig öllum heiminum.   Shocking


Mér finnst það svo sem fínt að líta sæmilega út og vera þokkalega til fara. En að það teldist mér helst til tekna að vera einhver glansfígúra myndi mér finnast vera þungur áfellisdómur.
Ég vil vera metin fyrir hvers konar persónu ég hef að geyma en ekki fyrir ytri umbúðir.
Það verður enginn ánægður við morgunverðar borðið þegar hann kemst að því að eggið hans er bara skurnin tóm.   Crying


mbl.is JLo bætist í hóp aðdáenda Beckham-hjónanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Fegurðin hefur líka verið skurmskæld í öllu þessu tískufári sem gengur yfir heimsbyggðina. Það sem er samt svo gott er að þegar maður hittir fólk í eigin persónu þá er alveg sama hvað það setur á sig mikið meik og púður það felur ekki tómarúmið innanborðs. Og innri fegurð getur geislað í gegnum garma svo manni finnst viðkomandi klæðast meistaraklæðum. Verði ljós.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.2.2007 kl. 18:10

2 Smámynd: Hugarfluga

Segðu! Er þér mikið sammála, þó ég hafi afskaplega gaman af að mála mig og punta :)

Hugarfluga, 12.2.2007 kl. 20:10

3 identicon

Ja hérna...það sem er hægt að segja um fólk sem maður þekkir ekki nema í gegnum soprit og aðra fjölmiðla.

Einar (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava frá Strandbergi
Svava frá Strandbergi

Myndlistarmaður. Smellið á myndina til að sjá verð á skopmyndum sem og eftirprentunum úr galleryi.
Myndir á þessarri síðu eru verndaðar af höfundarrétti hjá Myndstef.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband